Þjóðfélagsfræði við Háskóla Íslands í hálfa öld
Hvenær
10. febrúar 2023 15:30 til 17:30
Hvar
Aðalbygging
Hátíðasal
Nánar
Aðalbygging HÍ
Opið öllum
Þjóðfélagsfræði við Háskóla Íslands í hálfa öld
Haustið 1970 var Námsbraut í almennum þjóðfélagsfræðum stofnuð við Háskóla Íslands. Í námsbrautinni voru kenndar þrjár greinar, félagsfræði, mannfræði og stjórnmálafræði.
Í tilefni tímamótanna er efnt til afmælisfagnaðar í Hátíðasal Háskóla Íslands þann 10. febrúar 2023. Þar verða flutt stutt ávörp um sögu og mikilvægi þjóðfélagsfræða á Íslandi og frumkvöðlar þjóðfélagsfræðanna hér á landi heiðraðir. Að lokinni dagskrá verða léttar veitingar.
Dagskrá
- Setning: Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, prófessor emeritus í mannfræði, sem jafnframt annast fundarstjórn.
- Landnám þjóðfélagsfræði við Háskóla Íslands. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrum prófessor í stjórnmálafræði.
- Félagsfræði í 50 ár. Þórólfur Þórlindsson, prófessor emeritus í félagsfræði.
- Mannfræði í 50 ár. Gísli Pálsson, prófessor emeritus í mannfræði.
- Stjórnmálafræði í 50 ár. Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði.
- Nýjar þverfræðilegar greinar spretta fram. Rannveig Traustadóttir, prófessor emeritus í fötlunarfræði.
- Kveðjur frá Félagsvísindasviði. Stefán Hrafn Jónsson, forseti sviðsins.
- Kveðjur frá Háskóla Íslands. Jón Atli Benediktsson rektor.
Öll velkomin!
Hægt verður að fylgjast með dagskránni í streymi hér.
Viðburðurinn fer fram í Aðalbyggingu HÍ í Hátíðasalnum. Ljósmynd: Mats Wibe Lund