Skip to main content

Höfundur fannst ekki

Höfundur fannst ekki - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
30. apríl 2024 18:00 til 18:30
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Stofa 023

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Nemendur í frönsku, kínversku og ítölsku sýna afrakstur vinnu sinnar á námsönninni í áfanganum Tungumál og leiklist.

Ítalska verkið Sex persónur í leit að höfundi eftir Pirandello var notað sem innblástur fyrir verkið. Um er að ræða 20 mínútna leiksýningu / gjörning sem skiptist í 6 misjafnar senur, á öllum þremur tungumálunum.

Óþarfi er fyrir áhorfendur að skilja viðkomandi tungumál, en sýningin er opin almenningi. Nemendur, kennarar og áhugamenn um tungumál og/eða leiklist, eru hvattir til að koma og sjá sýninguna.

Sýningin fer fram í Veröld Vigdísar, í fyrirlestrarsal (stofu 023), þriðjudaginn 30. apríl kl 18:00.