Skip to main content

Forsenda nýsköpunar: Áhrif vísinda á íslenskt samfélag - málþing

Forsenda nýsköpunar: Áhrif vísinda á íslenskt samfélag - málþing - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
16. maí 2024 14:00 til 15:30
Hvar 

Háskólinn í Reykjavík, stofa M208

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Vegna niðurskurðar til vísindasjóða og aukinnar verðbólgu hafa framlög til vísindarannsókna lækkað umtalsvert á síðustu árum. Vísindasamfélagið vill bregðast við með því að benda á verðmæti vísinda fyrir samfélagið, óháð fræðasviði.

Að þessu málþingi standa saman Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík í samvinnu við ReykjavíkurAkademíuna og FEDON, félag doktorsefna og nýrannsakenda við HÍ.

Málþingið fer fram í stofu M208 í HR, fimmtudaginn 16. maí kl. 14.00-15.30.

Forsenda nýsköpunar: Áhrif vísinda á íslenskt samfélag.

  • Hverju skila lífvísindin til samfélagsins?
    - Erna Magnúsdóttir, dósent HÍ
  • Fjármögnun grunnrannsókna: Næring fyrir nýsköpun.
    - Sigurður Ingi Erlingsson, prófessor HR
  • Áhrif samningsleysis á unga rannsakendur: Jafnrétti og samfélagsleg gæði í húfi.
    - Svava Dögg Jónsdóttir doktorsnemi HÍ/formaður FEDON
  • Frumkvöðlar á sviði fræða - áhugadrifnar rannsóknir og samfélagsleg nýsköpun.
    - Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir, ReykjavíkurAkademíunni
  • Verðmætasköpun, samfélagsleg áhrif og gagnrýnin hug- og félagsvísindi.
    - Þorgerður Einardsóttir, prófessor HÍ

Fundarstjóri: Magnús Karl Magnússon, prófessor við HÍ.