Skip to main content
19. febrúar 2021

Vel á fimmta hundrað kandídata brautskráð frá Háskóla Íslands

Vel á fimmta hundrað kandídata brautskráð frá Háskóla Íslands - á vefsíðu Háskóla Íslands

Háskóli Íslands brautskráir 467 kandídata úr grunn- og framhaldsnámi laugardaginn 20. febrúar. Að þessu sinni verður ekki haldin hefðbundin brautskráningarhátíð vegna samkomutakmarkana en til þess að stuðla að því að kandídatar geti fagnað langþráðum áfanga mun skólinn skapa hátíðarstemningu í Háskólabíói umræddan dag og bjóða kandídötum að sækja prófskírteini sín þangað. 

Afhendingu prófskírteina á laugardag verður skipt upp eftir fræðasviðum. Verkfræði- og náttúruvísindasvið ríður á vaðið kl. 10-11, Hugvísindasvið kemur þar á eftir kl. 11-12, Heilbrigðisvísindasvið og Menntavísindasvið kl. 12-13 og loks verða prófskírteini frá Félagsvísindasviði afhent kl. 13-14. Kandídatar hafa þegar fengið sendar frekari upplýsingar og leiðbeiningar með tölvupósti.

Sem fyrr segir brautskrást samtals 467 kandídatar með 468 gráður frá Háskóla Íslands að þessu sinni, 203 úr grunnnámi og 264 úr framhaldsnámi. Frá Félagsvísindasviði skólans brautskráist 151 kandídat, 63 frá Heilbrigðisvísindasviði, 87 frá Hugvísindasviði, 105 frá Menntavísindasviði og 61 frá Verkfræði- og náttúruvísindasviði. Í brautskráningarhópnum eru 327 konur og 140 karlar.

Meðal kandídatanna eru enn fremur fyrstu nemendurnir sem ljúka MT-prófi frá Menntavísindasviði skólans. Um er að ræða 120 eininga meistarapróf til kennsluréttinda þar sem nemendur taka námskeið til 30 eininga í stað þess að vinna jafnstórt lokaverkefni.

Við afhendingu prófskírteina verður sóttvarnaviðmiðum fylgt í hvívetna og eru kandídatar hvattir að bera andlitsgrímur þegar þeir koma í Háskólabíó. Grímur og sótthreinsispritt verður einnig á staðnum fyrir þau sem það vilja. Kandídatar eru jafnframt hvattir til að virða 2 metra regluna í bíóinu og forðast hópamyndun fyrir utan húsið. Starfsfólk verður á staðnum og veitir frekari leiðbeiningar. 
 

Kandídatar á brautskráningu