Skip to main content
9. nóvember 2023

Sextán lið grunnskólanema taka þátt í hönnunarkeppni FIRST LEGO League

Sextán lið grunnskólanema taka þátt í hönnunarkeppni FIRST LEGO League - á vefsíðu Háskóla Íslands

Ríflega 100 grunnskólanemar á aldrinum 10-16 ára alls staðar af landinu taka þátt í hinni árlegu tækni- og hönnunarkeppni FIRST LEGO League sem fram fer í Háskólabíói laugardaginn 11. nóvember. Keppnin verður opin almenningi eftir hádegi og þá verður jafnframt opið í Vísindasmiðju Háskóla Íslands í bíóinu.

Háskóli Íslands heldur utan um keppnina en markmið hennar er að auka áhuga ungs fólks á tækni og vísindum og efla færni og lausnarmiðaða hugsun. Í keppninni reynir á nýsköpunarhugsun og samskipta- og samstarfshæfni liða en um leið er ætlunin að byggja upp sjálfstraust ungs fólks.

Keppnin skiptist í nokkra hluta þar sem þátttökulið glíma við fjölbreytt verkefni, þar á meðal að forrita vélmenni úr tölvustýrðu LEGOi til að leysa tilteknar þrautir á þrautabraut. Þá vinna liðin nýsköpunarverkefni sem tengist þema keppninnar í ár, en að þessu sinni er það tengt samspili vísinda og tækni við listir og menningu og ber heitið Meistaraverkefni (MASTERPIECE). Þannig munu keppnisliðin kanna listheiminn, hvaðan list er sprottin og hvernig henni er miðlað og beita aðferðum rannsókna og nýsköpunar og ímyndunaraflinu við að finna nýjar leiðir til að skapa og miðla list um heim allan. Auk framangreinds þurfa keppnisliðin að gera grein fyrir því hvernig þau hanna og forrita vélmennið og loks er horft sérstaklega til liðsheildar. 

Sem fyrr segir eru sextán lið grunnskólanema skráð til leiks að þessu sinni, þar á meðal nokkur lið sem eru að taka þátt í fyrsta sinn. Í þeirra hópi er lið frá STEM Húsavík sem er fyrsta þverfaglega STEM fræðslunetið á Íslandi með áherslu á samfélagsþátttöku.

Sigurvegurum í tækni- og hönnunarkeppni FIRST LEGO League býðst að taka þátt í norrænni keppni FIRST LEGO League síðar í vetur. Valið stendur á milli Skandinavísku keppninnar í Noregi, þar sem norsk og sænsk lið taka þátt, og Dönsku lokakeppninnar þar sem dönsk og færeysk lið etja kappi.

Tækni- og hönnunarkeppni FIRST LEGO League hefst klukkan 9.30 á laugardag og verður hægt að fylgjast með henni í beinni útsendingu á netinu. Klukkan 12.30 verður Háskólabíó svo opnað fyrir almenningi. Gestir geta þá kynnt sér verkefni keppenda á básum í anddyri bíósins og uppgötvað og upplifað vísindi með tilraunum og leik í Vísindasmiðjunni sívinsælu sem finna má í bíóinu.
 

Frá tækni- og hönnunarkeppni FIRST LEGO League árið 2022