Skip to main content
3. september 2021

Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 50 ára

Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 50 ára - á vefsíðu Háskóla Íslands

Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands fagnar 50 ára starfsafmæli á þessu ári og af því tilefni hefur verið opnuð sýning í Þjóðarbókhlöðu um sögu stofnunarinnar. Á sýningunni er varpað ljósi á starfssögu Sagnfræðistofnunar, kennara og nemendur, rannsóknir, útgáfu og kennslu í sagnfræði um hálfrar aldar skeið. Þar eru til sýnis fjölmargar ljósmyndir úr Skjalasafni Sagnfræðistofnunar, Myndasafni HÍ og fleiri söfnum. Einnig eru á sýningunni myndskeið úr safni RÚV og Skjalasafni Háskóla Íslands og hljóðupptökur úr safni Miðstöðvar munnlegrar sögu.

Sýningin var opnuð að viðstöddum forseta Íslands, menntamálaráðherra og rektor Háskóla Íslands. Hún verður opin til loka nóvember. Sýningin er samstarfsverkefni Sagnfræðistofnunar Háskóla Íslands og Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Smellið hér til að skoða sýningarskrá (pdf) og hér til að skoða myndir frá opnuninni

Í spilaranum hér að neðan má hlýða á þau Guðmund Jónsson, Helga Þorláksson og Ragnheiði Kristjánsdóttur ræða um stofnunina á þessum tímamótum.

Frá opnun sýningarinnar í Þjóðarbókhlöðu.