Skip to main content
12. júlí 2021

Ný stjórn MBA náms og Viðskiptafræðistofnunar

Ný stjórn MBA náms og Viðskiptafræðistofnunar - á vefsíðu Háskóla Íslands

Ný stjórn MBA-náms Háskóla Íslands og Viðskiptafræðistofnunar tók til starfa þann 1. júlí s.l. Nýr formaður stjórnar er Ásta Dís Óladóttir dósent og varaformaður er Hersir Sigurgeirsson dósent.

Aðrir í stjórninni eru Sigurjóna Sverrisdóttir verkefnastjóri hjá Meet in Reykjavík en hún útskrifaðist úr MBA-náminu árið 2011, Haukur C. Benediktsson lektor og framkvæmdastjóri fjármálastöðugleika hjá Seðlabanka Íslands og Sigrún Gunnarsdóttir prófessor í Viðskiptafræðideild. 

Viðskiptafræðistofnun Háskóla Íslands er fræðslu- og rannsóknarstofnun sem er starfrækt í umboði Viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands. Stofnunin heldur úti MBA námi en MBA-námið við Háskóla Íslands er alþjóðlega viðurkennt nám (accreditation) frá Association of MBA´s (AMBA).

AMBA eru óháð samtök sem hafa það að markmiði að efla gæði menntunar á sviði stjórnunar og reksturs. Um er að ræða eina virtustu viðurkenningu sem hægt er að fá fyrir MBA-nám, en rúmlega 300 skólar í heiminum hafa hlotið slíka viðurkenningu. 

MBA námið er kennt í samstarfi við Yale School of Management í Bandaríkjunum og IESE Business School of Navarra í Barcelona, sem báðir er í allra fremstu röð í heiminum á sviði MBA-náms.

Stjórn MBA námsins