Skip to main content
10. nóvember 2020

Dymbrá á Háskólatónleikum á miðvikudag

Hljómsveitin Dymbrá stígur á stokk á öðrum Háskólatónleikum vetrarins í Hátíðasal Háskóla Íslands miðvikudaginn 11. nóvember kl. 12.15. Tónleikunum verður streymt í ljósi yfirstandandi samfélagshamlana og salurinn verður tómur, utan tæknifólks og tónlistarmanna. 

Hér verður hægt að nálgast streymi frá tónleikunum

Röðinni  var ýtt úr vör í endaðan október með glæsilegum streymistónleikum djassgítarleikarans Mikaels Mána og sveitar hans. Nú er hins vegar komið a Dymbrá sem vakti verðskuldaða athygli á Músíktilraunum 2018.

Sveitina skipa þær Nína Solveig Andersen, Eir Ólafsdóttir og Eyrún Úa Þorbjörnsdóttir skipa sveitina. Eir leikur á selló, Nína á fiðlu og Eyrún á flautu en mörg önnur hljóðfæri eru brúkuð. Meðlimir eru nú, tveimur árum síðar, ekki nema átján ára en hafa þegar gefið út burðuga plötu sem inniheldur dökkleita og draumkennda kammertónlist. Falleg, þjóðlagabundin ára leikur um hana og lög eru brotin upp óhikað með rafstemmum og öðru slíku skrauti, tilraunamennska í hávegum höfð á sama tíma og byggingu og melódíum er haldið. Stemningin er hreint út sagt ævintýraleg á köflum (platan er á Spotify og Bandcamp). 

Sem fyrr segir er tónleikum Dymbrár streymt úr Hátíðasal Háskólans og verður bæði hægt horfa á beint en einnig að njóta síðar í upptökuformi. Tónleikarnir eru opnir öllum og aðgangur gjaldfrjáls.

Um Háskólatónleika

Um áratugabil, og raunar í hálfa öld, hefur það verið hefð í Háskóla Íslands að standa fyrir svofelldum Háskólatónleikum. Um mánaðarlega viðburði er að ræða, á haust- og vormisseri, og fara þeir fram í byggingum háskólans.

Nýr umsjónarmaður tónleikaraðarinnar og listrænn stjórnandi er dr. Arnar Eggert Thoroddsen og segist hann styðjast við slagorðið „Háskóli fyrir alla - Tónlist fyrir alla“ á þessum komandi vetri. Fólk geti búist við tónlist sem tilheyri alls kyns geirum, svo sem poppi/rokki, djass, klassík og bara því sem álitlegt þykir hverju sinni.

Síðustu tónleikar haustmisseris verða 16. desember en þá mun hin vel þokkaða sveit Umbra flytja jólatónlist með sínu annálaða nefi í hinni fögru Háskólakapellu.

Meðlimir Dymbrár