Skip to main content

Úthlutun úr sjóði Steingríms Arasonar

Úthlutun úr sjóði Steingríms Arasonar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
4. október 2019 17:00 til 17:30
Hvar 

Stakkahlíð / Háteigsvegur

Skáli

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Þann 4. október næstkomandi verður úthlutað í annað sinn úr styrktarsjóði Steingríms Arasonar. Markmið sjóðsins er að efla sérfræðiþekkingu í menntunar- og kennslufræðum. Styrkir verða veittir til sérfræðinga eða nemenda í framhaldsnámi í menntunar- og kennslufræðum. 

Um sjóðinn

Sjóður Steingríms Arasonar hét áður Columbia-sjóður en hann var stofnaður með peningagjöf Steingríms Arasonar kennara árið 1939. Steingrímur (1879-1951) lauk kennaraprófi frá Flensborgarskóla árið 1908. Hann stundaði háskólanám í uppeldis- og menntunarfræði, fyrstur Íslendinga, við Teachers College í Columbia-háskóla í Bandaríkjunum (1915-1920). Hann starfaði við kennslu barna og unglinga í Eyjafirði og Reykjavík en aðalkennslustörf hans voru við Kennaraskólann þar sem hann kenndi í 20 ár. 