Tómstundadagurinn 2018 - #sjúkást
Stakkahlíð / Háteigsvegur
Bratti
Tómstundadagurinn 2018 verður haldinn miðvikudaginn 28. febrúar í húsnæði Menntavísindasviðs í Stakkahlíð.
Viðburðurinn í ár er haldinn í samstarfi við Stígamót og snýr að verkefninu #sjúkást. Tekin verða fyrir aðkallandi málefni unglinga sem varða heilbrigð og óheilbrigð ástar-, vina- og fjölskyldusambönd. Markmiðið er að veita fagfólki og þeim sem koma að daglegu lífi unglinga aukna þekkingu á þessu mikilvæga málefni.
Dagskrá
Bratti 10:00-11:30
Ertu sjúklega ástfanginn eða ertu „sjúklega“ ástfanginn?
Heiðrún Fivelstad og Steinunn Ólína Hafliðadóttir
Upplifun unglinga á samböndum
Ungmennaráð Samfés. talsmenn f. hönd unglinga
Hinsegin börn og ungmenni: Hvað þurfa þau sem starfa með ungu fólki að hafa í huga?
Sólveig Rós, fræðslustýra Samtakanna 78 og Hrefna Þórarinsdóttir, forstöðukona Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar S78 ogTjarnarinnar
Félags- og vináttufærni
Vanda Sigurgeirsdóttir og Jón Halldórsson
11:30-12:30
Hádegishlé
12:30-13:30
Málstofur
Stofa H-101
Ungt fólk, klám og kynlíf: Upplifun ungs fólks af kynlífsmenningu framhaldsskólanema
Þórður Kristinsson, framhaldsskólakennari segir frá rannsóknum sínum og Kolbrúnar Sigurjónsdóttur á kynlífsmenningu framhaldsskólanema með sérstakri áherslu á viðhorf og umræður unga fólksins um klám.
Stofa H-202
Kynferðisofbeldi í unglingssamböndum
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir frá Stígamótum. Fjallað verður um viðbrögð í nærumhverfi.
Stofa H-203
Fuck me fuck you - Samskipti eða áreiti?
Kári Sigurðsson og Andrea Marel sýna raunveruleg dæmi um áreiti og samskipti milli unglinga á samfélagsmiðlunum. Hvað getum við gert?
Stofa H-204
Af hverju getum við ekki bara verið næs?
Óli Örn Atlason talar um netmenningu í nútímasamfélagi. Af hverju fara samskiptin úr böndunum og hvernig getum við haft áhrif á unglingamenninguna þegar við vitum ekki hvað er í gangi?
Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.
Um Tómstundadaginn
Tómstundadagurinn er skipulagður af námsbraut í tómstunda- og félagsmálafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Markmið Tómstundadagsins er að taka fyrir aðkallandi málefni sem varpa ljósi á mikilvægi tómstunda og tengjast velferð og lífsgæðum fólks.
Tómstundadagurinn verður haldinn 28. ferbúar 2018.