Skip to main content

Kynningardagar fyrir nýja erlenda nemendur

Kynningardagar fyrir nýja erlenda nemendur - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
21. ágúst 2019 9:45 til 23. ágúst 2019 23:00
Hvar 

Háskólatorg

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Kynningardagar fyrir erlenda nemendur eru haldnir í upphafi hvers misseris. Markmið daganna er að bjóða nemendur velkomna, kynna þjónustu í boði og aðstoða nemendur við að aðlagast nýju umhverfi.

Dagskráin er fjölbreytt og er m.a. boðið upp á örnámskeið í íslensku og námskeið frá Náms- og starfsráðgjöf þar sem farið er yfir leiðir til að ná árangri í náminu við Háskólann. Þá eru kynningarfundir sviða einnig hluti af dagskránni.

Nemendur fá auk þess leiðsögn um háskólasvæðið og kynningu á þjónustu Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns. 

Á fimmtudeginum 22. ágúst verður svo móttaka á Háskólatorgi þar sem Jón Atli Benediktsson rektor og Jóna Þórey Pétursdóttir forseti Stúdentaráðs halda ávörp og bjóða nemendur velkomna. Boðið verður upp á tónlist og grillaðar pylsur.

DAGSKRÁ

 

Dagskráin er fjölbreytt og er m.a. boðið upp á örnámskeið í íslensku og námskeið frá Náms- og starfsráðgjöf þar sem farið er yfir leiðir til að ná árangri í náminu við Háskólann.

Kynningardagar fyrir nýja erlenda nemendur