Skip to main content

Um MA-nám í spænskukennslu

MA-nám í spænskukennslu er 120 eininga nám sem veitir í senn meistaragráðu og réttindi til kennslu í spænsku á framhaldsskólastigi. Námið er skipulagt og kennt í samvinnu við Menntavísindasvið. Nemendur taka 60 einingar í kennslufræði, þar af 50 einingar á Menntavísindasviði og 10 einingar í Mála- og menningardeild. Þeir skulu einnig ljúka 60 einingum í spænsku, þar af 30 eininga lokaverkefni. Æskilegt að taka námskeið í spænsku samhliða námi á Menntavísindasviði.

Þetta er starfsmiðað nám sem ætlað er jafnt starfandi kennurum og þeim sem hyggja á kennslu í spænsku í framhaldsskólum. Jafnframt er það undirbúningur undir störf sem fela í sér umsjón með spænskukennslu í skólum eða fræðsluumdæmum (deildar- eða fagstjórn, endurmenntun).

Hægt er að hafa samband við verkefnastjóra deildar og verkefnastjóra alþjóðamála til að fá nánari upplýsingar um nám og skiptinám.