Umsóknarfrestur í framhaldsnám við Hjúkrunarfræðideild er 15. apríl fyrir innritun á haustmisseri en 15. október fyrir innritun á vormisseri, þar sem við á. Tekið er við umsóknum um doktorsnám utan þessa tíma. Umsækjandi þarf að senda inn rafræna umsókn um framhaldsnám. Í sumum tilfellum þarf einnig að skila inn fylgigögnum með umsókn (.pdf skrá) og staðfestu afriti af frumgögnum. Öllum fylgiskjölum sem kunna að vera á pappír skal skilað til nemendaskrár, Háskólatorgi, 3. hæð. Sjá nánari upplýsingar um inntökuskilyrði og umsóknarferli hverrar námslínu fyrir sig hér fyrir neðan. Hjúkrunarfræði, MS-nám Umsóknarfrestur í meistaranám er á vorin til 15. apríl og á haustin til 15. október. Umsækjandi um meistaranám við Hjúkrunarfræðideild þarf að hafa lokið BS-prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands eða öðru samsvarandi prófi og hafa gilt íslenskt hjúkrunarleyfi. Miðað er við að nemandi hafi að lágmarki 6,5 í aðaleinkunn úr BS prófi eða samsvarandi námi. Jafnframt þarf nemandi að búa yfir góðri íslensku og enskukunnáttu. Öll kennsla fer fram á íslensku. Nemendur sem lokið hafa BS-námi frá Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands eða sambærilegu námi fá allt að 30 einingar metnar inn í MS-nám hafi þeir að lágmarki 6,5 í aðaleinkunn. Ef umsækjandi er með BS próf frá erlendum skóla fer fram samanburðarmat miðað við íslenska háskóla hjá Matsskrifstofu Háskóla Íslands. Út frá því er metið hvort umsækjandi þurfi að fara í forkröfunám til undirbúnings fyrir meistaranám. Koma má á framfæri óskum um tiltekna umsjónarkennara/leiðbeinendur um leið og sótt er um meistaranám (t.d. í greinargerð) þó deild sé ekki bundin af slíkum óskum. Athugið að þegar sótt er um meistaranám með áherslu á rannsóknaþjálfun verður að vera búið að semja við væntanlegan leiðbeinanda. Eftir að nám er hafið leggur nemandi fram rannsóknaráætlun í samvinnu við leiðbeinanda sem rannsóknanámsnefnd þarf að samþykkja áður en framkvæmd rannsóknar hefst. Umsækjandi þarf að senda inn rafræna umsókn um framhaldsnám. Viðbótargögn með rafrænni umsókn eru: Prófskírteini/einkunnir (gildir ekki um umsækjendur sem lokið hafa prófi frá HÍ). Þeir sem hafa lokið BS prófi frá öðrum háskóla verða að skila inn staðfestu afriti af prófskírteini (stimplað og á pappír). Ef umsækjandi er með BS próf frá erlendum háskóla fer fram samanburðarmat miðað við íslenska háskóla hjá Matsskrifstofu HÍ. Náms- og starfsferilsskrá (.pdf skrá) Nöfn tveggja umsagnaraðila (reitur á rafrænu umsóknareyðublaði). Lýsing á áhugasviði og námsmarkmiðum (vista formið á .pdf). Þetta gildir hvort sem áherslan er á klínískt starf, hjúkrunarstjórnun eða rannsóknaþjálfun. Hægt er að óska eftir tilteknum umsjónarkennara/leiðbeinanda í umsókn en er ekki nauðsynlegt þegar um er að ræða meistaranám með 30 eininga lokaverkefni. Fylgiskjölum á pappír skal komið til nemendaskrár, Háskólatorgi, 3. hæð. Við inntöku í meistaranámið fær nemandi úthlutað umsjónarkennara. Fyrir eða við upphaf náms ber nemandi ábyrgð á að mæla sér mót við umsjónarkennarann til að gera áætlun um námskeiðaval og áherslur í námi. Við inntöku í meistaranámið er einkum tekið mið af: Einkunnum úr BS-námi í hjúkrunarfræði Greinargerð þar sem umsækjandi gerir grein fyrir markmiðum sínum með náminu með sérstakri áherslu á fyrirhugað rannsóknarverkefni Geðhjúkrun, MS-nám Umsóknarfrestur í meistaranám er á vorin til 15. apríl og á haustin til 15. október. Umsækjandi um meistaranám við Hjúkrunarfræðideild þarf að hafa lokið BS-prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands eða öðru samsvarandi prófi og hafa gilt íslenskt hjúkrunarleyfi. Miðað er við að nemandi hafi að lágmarki 6,5 í aðaleinkunn úr BS prófi eða samsvarandi námi. Jafnframt þarf nemandi að búa yfir góðri íslensku og enskukunnáttu. Öll kennsla fer fram á íslensku. Nemendur sem lokið hafa BS-námi frá Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands eða sambærilegu námi fá allt að 20 einingar metnar inn í MS-nám í geðhjúkrun hafi þeir að lágmarki 6,5 í aðaleinkunn. Ef umsækjandi er með BS próf frá erlendum skóla fer fram samanburðarmat miðað við íslenska háskóla hjá Matsskrifstofu Háskóla Íslands. Út frá því er metið hvort umsækjandi þurfi að fara í forkröfunám til undirbúnings fyrir meistaranám. Koma má á framfæri óskum um tiltekna umsjónarkennara/leiðbeinendur um leið og sótt er um meistaranám (t.d. í greinargerð) þó deild sé ekki bundin af slíkum óskum. Umsækjandi þarf að senda inn rafræna umsókn um framhaldsnám. Viðbótargögn með rafrænni umsókn eru: Prófskírteini/einkunnir (gildir ekki um umsækjendur sem lokið hafa prófi frá HÍ). Þeir sem hafa lokið BS prófi frá öðrum háskóla verða að skila inn staðfestu afriti af prófskírteini (stimplað og á pappír). Ef umsækjandi er með BS próf frá erlendum háskóla fer fram samanburðarmat miðað við íslenska háskóla hjá Matsskrifstofu HÍ. Náms- og starfsferilsskrá (.pdf skrá) Nöfn tveggja umsagnaraðila (reitur á rafrænu umsóknareyðublaði). Umsagnarbréf frá einum vinnuveitanda (vinnuveitandi sendir bréfið í tölvupósti á umsókn@hi.is). Lýsing á áhugasviði og námsmarkmiðum (vista formið á .pdf). Hægt er að óska eftir tilteknum umsjónarkennara/leiðbeinanda í umsókn en er ekki nauðsynlegt þegar um er að ræða meistaranám með 30 eininga lokaverkefni. Fylgiskjölum á pappír skal komið til nemendaskrár, Háskólatorgi, 3. hæð. Við inntöku í meistaranámið fær nemandi úthlutað umsjónarkennara. Fyrir eða við upphaf náms ber nemandi ábyrgð á að mæla sér mót við umsjónarkennarann til að gera áætlun um námskeiðaval og áherslur í námi. Fjöldatakmörkun er í námið, sbr. 5. gr. reglna um takmörkun á inntöku nemenda í tilteknar námsgreinar við Háskóla Íslands nr. 153/2010. Í kennsluskrá kemur fram að annað hvert ár eru 12 nemendur teknir inn í námið. Ef fleiri umsækjendur uppfylla inntökuskilyrði en unnt er að taka inn í námið, skal val á nemendum fara fram á grundvelli eftirfarandi þátta: Námsárangurs í fyrra háskólanámi eða viðbótarnámi og/eða þátttöku í rannsóknum sem styrkja umsókn að mati námsstjórnar. Starfsreynslu eftir BS-próf í hjúkrunarfræði. Kynningarbréfs. Lýsing á áhugasviðum og markmiðum. Umsagnarbréfs vinnuveitanda. Kynjahlutfalls í greininni. Byrjað er á að bjóða þeim námspláss sem raðast efst. Ef umsækjandi afþakkar námspláss er næsta umsækjanda í röðinni boðið plássið. Námsstjórn í geðhjúkrun fjallar um umsóknirnar og tekur ákvörðun um val stúdenta.Ljósmóðurfræði til starfsréttinda, MS Umsóknarfrestur í nám í ljósmóðurfræði til starfsréttinda er til 15. apríl ár hvert. Inntökuskilyrði í meistaranám í ljósmóðurfræði til starfsréttinda er BS-gráða í hjúkrunarfræði, viðurkennt í því landi þar sem námið var stundað og íslenskt hjúkrunarleyfi. Forkrafa er einnig að hafa lokið tveimur námskeiðum sem flokkast undir valnámskeið á 4. ári í hjúkrunarfræði: Kynheilbrigði 6e (vor) og Konur, heilsa og samfélag 6e (vor) Heilbrigði kvenna (10e) við Háskólann á Akureyri Umsækjandi þarf að senda inn rafræna umsókn um framhaldsnám. Viðbótargögn með rafrænni umsókn eru: Prófskírteini/einkunnir (gildir ekki um umsækjendur sem lokið hafa prófi frá HÍ). Þeir sem hafa lokið BS prófi frá öðrum háskóla verða að skila inn staðfestu afriti af prófskírteini (stimplað og á pappír). Ef umsækjandi er með BS próf frá erlendum háskóla fer fram samanburðarmat miðað við íslenska háskóla hjá Matsskrifstofu HÍ. Greinargerð (meðal annars forsendur fyrir vali á námi og áhugasvið umsækjanda) 500 - 1000 orð. Náms- og starfsferilsskrá CV Öllum gögnum skal skilað í síðasta lagi 15. apríl. Fylgiskjölum á pappír skal komið til nemendaskrár, Háskólatorgi, 3. hæð. Fjöldatakmörkun er í námið (sbr. br. 128. gr. reglugerðar fyrir Háskóla Íslands nr. 458/2000 með áorðnum breytingum). Árlega eru 12 nemendur teknir inn. Verði umsækjendur fleiri fjallar námsnefnd í ljósmóðurfræði um umsóknirnar og tekur viðtöl við umsækjendur. Nefndin tekur endanlega ákvörðun um val á nemendum og vinnur samkvæmt reglum sem samþykktar hafa verið af Háskólaráði. Verði skráðir nemendur færri en 6, er ekki gert ráð fyrir að hafin verði kennsla í ljósmóðurfræði. Við inntöku í meistaranám í ljósmóðurfræði til starfsréttinda er tekið er mið af: Einkunnum úr námi í hjúkrunarfræði Annarri menntun og/eða starfsreynslu Frammistöðu í viðtali / Greinargerð (meðal annars forsendur fyrir vali á námi og áhugasvið umsækjanda - vista formið á .pdf) Ljósmóðurfræði, MS-nám Umsóknarfrestur í meistaranám er á vorin til 15. apríl og á haustin til 15. október. Til að innritast í meistaranám í ljósmóðurfræði við Hjúkrunarfræðideild þarf nemandi að hafa lokið kandídatsprófi í ljósmóðurfræði frá Háskóla Íslands eða öðru samsvarandi prófi, með að lágmarki 6,5 í aðaleinkunn. Heimilt er að víkja frá reglunni um lágmarkseinkunn hafi umsækjandi t.d. sýnt fram á námshæfni og/eða hæfni í sjálfstæðum rannsóknum. Hafi nemandi lokið ljósmóðurfræðiprófi annars staðar frá getur hann sótt um mat á námsferli til inngöngu í meistaranámið. Umsækjandi þarf að senda inn rafræna umsókn um framhaldsnám. Viðbótargögn með rafrænni umsókn eru: Prófskírteini/einkunnir (gildir ekki um umsækjendur sem lokið hafa prófi frá HÍ). Þeir sem hafa lokið BS og/eða kandídatsprófi frá öðrum háskóla verða að skila inn staðfestu afriti af prófskírteini (stimplað og á pappír). Ef umsækjandi er með BS próf frá erlendum háskóla fer fram samanburðarmat miðað við íslenska háskóla hjá Matsskrifstofu HÍ. Náms- og starfsferilsskrá (.pdf skjal) Nöfn tveggja umsagnaraðila (reitur á rafrænu umsóknareyðublaði) Stutt lýsing á áhugasviði og námsmarkmiðum (vista formið á .pdf). Fylgiskjölum á pappír skal komið til nemendaskrár, Háskólatorgi, 3. hæð. Haustið 2019 tók gildi breytt námsskrá í ljósmóðurfræði. Kantídatsnám í ljósmóðurfræði féll niður. Í staðinn mun námi í ljósmóðurfræði ljúka með meistaragráðu til starfsréttinda. Til að geta sótt um nám í ljósmóðurfræði samkvæmt breyttri námsskrá þurfa umsækjendur að hafa lokið tveimur námskeiðum í hjúkrunarfræði sem flokkast undir valnámskeið á fjórða ári. Viðbótardiplómanám Gerð er krafa um að umsækjandur hafi lokið BS-prófi í hjúkrunarfræði (með að lágmarki 6,5 í aðaleinkunn) eða samsvarandi prófi og sé handhafi hjúkrunarleyfis á Íslandi. Umsækjendur um diplómanám þurfa að búa yfir góðri enskukunnáttu. Öll kennsla fer fram á íslensku. Heimilt er að gera forkröfu um að umsækjandi hafi allt að tveggja ára starfsreynslu í hjúkrun. Heimilt að víkja frá reglunni um BS-próf hafi umsækjandi aflað sér sérstakra starfsréttinda eða lokið ákveðnu formlegu námi á því sviði, sem tilgreint er í auglýsingu um viðkomandi diplómanám. Umsækjandi þarf að senda inn rafræna umsókn um framhaldsnám. Viðbótargögn með rafrænni umsókn eru: Prófskírteini/einkunnir (gildir ekki um umsækjendur sem lokið hafa prófi frá HÍ). Þeir sem hafa lokið BS prófi frá öðrum háskóla verða að skila inn staðfestu afriti af prófskírteini (stimplað og á pappír). Ef umsækjandi er með BS próf frá erlendum háskóla fer fram samanburðarmat miðað við íslenska háskóla hjá Matsskrifstofu HÍ. Náms- og starfsferilsskrá (.pdf format) Nöfn tveggja umsagnaraðila (reitur á rafrænu umsóknareyðublaði) Eingöngu fyrir 90 e diplómanám: Stutt greinargerð (200-300 orð) um forsendur fyrir vali á námi, áhugasvið og markmið. Fylgiskjölum á pappír skal komið til nemendaskrár, Háskólatorgi, 3. hæð.Kynfræði, þverfræðilegt viðbótardiplóma Umsóknarfrestur í diplómanám í kynfræði er til og með 15. apríl. Til að innritast í diplómanám í kynfræði þarf að hafa lokið BS-, BA-, B.Ed.- prófi eða öðru háskólanámi sem metið er jafngilt fyrsta háskólaprófi. Lágmarkseinkunn skal vera 6,5. Námsstjórnin metur próf frá öðrum skólum en Háskóla Íslands. Námið er ætlað fagfólki innan heilbrigðis-, uppeldis- og félagsvísinda, s.s. félagsfræðingum, félagsráðgjöfum, guðfræðingum, hjúkrunarfræðingum, kennurum, kynjafræðingum, læknum, mannfræðingum, sálfræðingum og lögfræðingum. Viðbótargögn með rafrænni umsókn eru: Prófskírteini/einkunnir (gildir ekki um umsækjendur sem lokið hafa prófi frá HÍ). Þeir sem hafa lokið BS prófi frá öðrum háskóla verða að skila inn staðfestu afriti af prófskírteini (stimplað og á pappír) Náms- og starfsferilsskrá CV Greinargerð um markmið með náminu (1/2 - 1 bls.) - (ekki er um sérstakt form að ræða). Doktorsnám Umsækjendur þurfa að hafa lokið MS-próf í hjúkrunarfræði eða ljósmóðurfræði eða sambærilegu MS/MA-prófi frá viðurkenndum rannsóknarháskóla. Nánari upplýsingar um inntökuskilyrði og umsóknarferlið í doktorsnám við Heilbrigðisvísindasvið. facebooklinkedintwitter