Skip to main content

Skráning í námskeið fyrir almenning

Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt sumarnám sem mun henta bæði þeim sem eru nú þegar í námi og þeim sem vilja styrkja stöðu sína á vinnumarkaði, brúa færnibil eða skipta um starfsvettvang. Hér að neðan getur þú skráð þig í námskeið fyrir almenning.

Námskeið hjá edX.org

Almenningi stendur til boða að taka ókeypis netnámskeið af vef edX.org. Vilji viðkomandi fá vottorð fyrir að ljúka námskeiðinu og aðgang að námsmati þarf hann á hinn boginn að greiða námskeiðsgjald. Með því að sækja um netnámskeið hjá Háskóla Íslands fæst 10% afsláttur af námskeiðsgjöldum. Þessi netnámskeið eru tilvalin fyrir þau sem vilja dýpka þekkingu sína á ákveðnum málaflokki og stuðla að náms- og starfsþróun. Hægt er að kynna sér fjölbreytt námskeiðsúrval á vef edX. Athugið að skráning fer fram á vef edX.org.

Námskeið hjá Endurmenntun HÍ

Almenningi stendur til boða að taka námskeið hjá Endurmenntun HÍ fyrir 3.000 kr. hvert námskeið. Hægt er að skoða námskeiðaúrval á vef Endurmenntunar HÍ. Athugið að þetta úrræði er einungis í boði sumarið 2020. Athugið að skráning fer fram á vef Endurmenntunar HÍ.

Námskeið hjá HÍ

Boðið er upp á eftirfarandi námskeið handa almenningi.