Skip to main content
20. mars 2021

Vísindaráð almannavarna varar við dvöl nálægt gosstöðvunum 

Vísindaráð almannavarna varar við dvöl nálægt gosstöðvunum  - á vefsíðu Háskóla Íslands

Vísindaráð almannavarna fundaði á fjarfundi í dag, laugardag, til að ræða eldgosið í Geldingadölum. Fundinn sátu sérfræðingar frá Veðurstofu Íslands, Háskóla Íslands, ÍSOR, KAUST háskóla, Umhverfisstofnun, Náttúrufræðistofnun Íslands, Landmælingum Íslands og Orkuveitu Reykjavíkur auk fulltrúa frá Embætti landlæknis, Isavia-ANS og HS-Orku. Á fundinum var farið yfir úrvinnslu á nýjustu mælingum og gögnum sem vísindamenn á Veðurstofunni, Háskóla Íslands og ÍSOR hafa unnið að. 

Eldgos hófst í gærkvöldi á hrygg sem liggur í Geldingadölum. Umfang gossins er lítið og hefur virkni verið nokkuð stöðug í dag. Lítið er um kvikustróka upp úr sprungunni og rennur hraun úr gígum niður í dalina. Bráðabirgðaniðurstöður benda til þess að gossprungan hafi verið um 200 m löng í upphafi, hraunið um 10-15 m þykkt þar sem það er þykkast og heildar rúmmál þess orðið um 0.4 M m3. Eins og staðan er núna er gosið afmarkað við mjög lítið svæði ofan í dalverpi og er afar ólíklegt að hraunflæði komi til með að valda tjóni. Engin gosaska mælist frá eldstöðvunum og ekki er búist við mikill gosmengun í þéttbýli af völdum gossins.

Vísindaráð varar við eftirfarandi hættum í nálægð við gosstöðvar:

Það er mikilvægt að hafa í huga að næsta nágrenni gosstöðva er hættulegt svæði og geta aðstæður breyst hratt. Vísindaráð varar fólk við að dvelja nálægt gosstöðvunum við núverandi aðstæður. Helstu hættur í næsta nágrenni þeirra eru: 

  • Nýjar sprungur geta opnast í næsta nágrenni eldstöðvanna með engum fyrirvara. 
  • Glóandi hraun getur fallið úr hraunjaðrinum og hröð og skyndileg framhlaup orðið þar sem nýjar hrauntungur brjótast fram úr hraunjaðrinum með miklum hraða sem erfitt að forðast á hlaupum.  
  • Gígarnir eru nú orðnir margra metra háir og geta verið óstöðugir, þeir geta brotnað og mikill og skyndilegur hraunstraumur úr þeim tekið nýja stefnu. 
  • Sprengingar geta orðið þar sem hraun rennur yfir vatnsmettaðan jarðveg og þeytt hrauni til allra átta. 
  • Hraunið rennur í lokaða dæld og geta lífshættulegar gastegundir safnast saman í dældum sem getur verið banvænt. Hættan eykst þegar vindur minnkar. 

Neðangreindar sviðsmyndir eru í gildi:

  • Það dregur smám saman úr eldgosinu í Geldingadal og því líkur á næstu dögum eða vikum 
  • Nýjar gossprungur opnast á núverandi gosstað eða á kvikuganginum í næsta nágrenni Fagradalsfjalls 
  • Minni líkur eru á stærri skjálftum í nágrenni Fagradalsfjalls vegna kvikuflæðis 
  • Skjálfti verður að stærð 6.5 sem á sér upptök í Brennisteinsfjöllum 
Hraunmoli í hönd
Vísindamenn komu með sýnishorn af hrauni í Öskju fyrr í dag.
Hraunsýni frá gosstöðvum
Tekið upp úr kössum eftir ferð í Geldingadal.