Skip to main content
21. desember 2020

Verðlaunaður fyrir afburðaárangur í verkfræði við Háskóla Íslands

Verðlaunaður fyrir afburðaárangur í verkfræði við Háskóla Íslands - á vefsíðu Háskóla Íslands

Ingvar Þóroddsson, BS-nemi á þriðja ári í rafmagns- og tölvuverkfræði við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands, hefur hlotið styrk úr Minningarsjóði Þorvalds Finnbogasonar stúdents. Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands og systir Þorvalds, afhenti styrkinn.

Sjóðurinn styrkir árlega efnilega nema í verkfræði við Háskóla Íslands til framhaldsnáms í verkfræði. Sá nemandi, sem er með hæstu meðaleinkunn eftir annað ár í grunnnámi, hlýtur styrkinn hverju sinni. 

Ingvar lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 2018 og hlaut m.a. menntaverðlaun Háskóla Íslands fyrir framúrskarandi árangur á stúdentsprófi og eftirtektarverðan árangur í listum og félagsstörfum. Hann hóf nám við Háskóla Íslands sama ár. Ingvar hefur verið virkur þátttakandi í félagsstarfi skólans og situr nú í Nýsköpunar- og frumkvöðlanefnd Stúdentaráðs Háskóla Íslands.  

Minningarsjóður Þorvalds Finnbogasonar stúdents var stofnaður af foreldrum hans, Sigríði Eiríksdóttur og Finnboga Rúti Þorvaldssyni, fyrrverandi forseta verkfræðideildar Háskóla Íslands. Árlega er veitt viðurkenning úr sjóðnum til afburðanemanda í verkfræði við Háskóla Íslands en sjóðurinn var stofnaður á 21 árs afmæli Þorvalds, þann 21. desember 1952.

 

Við afhendingu styrksins úr Minningarsjóði Þorvalds Finnbogasonar í dag. Frá vinstri: Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, Magnús Örn Úlfarsson, forseti Rafmagns- og tölvuverkfræðideildar, Ingvar Þóroddsson, BS-nemi í rafmagns- og tölvuverkfræði, Sigurður Magnús Garðasson, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Ástríður Magnúsdóttir, listamaður og dóttir Vigdísar Finnbogadóttur, og Vigdís Finnbogadóttir.
Ingvar Þóroddsson