Skip to main content
28. júní 2019

Útskriftarnemar verðlaunaðir fyrir námsárangur í eðlisfræði og efnafræði 

""

Tveir nemendur sem útskrifast úr grunnnámi með BS-gráðu í eðlisfræði og efnafræði við Háskóla Íslands háskólaárið 2018-2019 hljóta verðlaun úr Verðlaunasjóði Guðmundar P. Bjarnasonar frá Sýruparti á Akranesi í ár. Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn föstudaginn 28. júní. Verðlaunaféð nemur tveimur milljónum króna.

Gunnlaugur Helgi Stefánsson hlýtur eina milljón króna í verðlaun fyrir námsárangur í eðlisfræði en hann útskrifaðist með ágætiseinkunn frá Háskóla Íslands nú í júní. Gunnlaugur mun hefja framhaldsnám í stjarneðlisfræði við Leiden-háskóla í Hollandi í september nk. en skólinn er einn sá virtasti háskóli á því sviði. 
 
Tómas Arnar Guðmundsson hlýtur eina milljón króna í verðlaun fyrir námsárangur í efnafræði en hann útskrifaðist einnig með ágætiseinkunn nú í júní. Tómas er á leið í framhaldsnám í efnafræði við Trinity College í Dublin á Írlandi.

Átti ekki kost á að stunda háskólanám 
Verðlaunasjóður Guðmundar P. Bjarnasonar frá Sýruparti á Akranesi var stofnaður árið 2000 með rausnarlegri gjöf Guðmundar, sem hann bætti síðar tvívegis í. Guðmundur fæddist á Sýruparti á Akranesi 1909 og bjó um árabil á Höfða, dvalarheimili aldraðra á Akranesi, en hann lést í febrúarmánuði 2006 í hárri elli. Hann átti þess ekki kost að stunda háskólanám en starfaði sem netagerðarmaður og fiskmatsmaður á Akranesi auk þess að stunda útgerð í félagi við bróður sinn. Guðmundur var einn af stofnendum Knattspyrnufélagsins Kára árið 1922 og Taflfélags Akraness árið 1933. 

Ljóst er að hlutfallslega færri nemendur sækja háskólanám í eðlisfræði og efnafræði á Íslandi en í samanburðarlöndum okkar. Stuðningur Guðmundar við háskólanemendur í eðlis- og efnafræði er því mikilvægt lóð á þá vogarskál að hvetja unga Íslendinga að sækja nám í þessum fögum.

Stjórn Verðlaunasjóðs Guðmundar P. Bjarnasonar frá Akranesi skipa Guðmundur G. Haraldsson, prófessor í efnafræði, sem er formaður, Hafliði Pétur Gíslason, prófessor í eðlisfræði, og Eiríkur Dór Jónsson, fulltrúi Arion banka sem er vörsluaðili sjóðsins samkvæmt skipulagsskrá.

 

Frá úthlutun verðlaunanna. Frá vinstri: Guðmundur G. Haraldsson, formaður stjórnar, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, Gunnlaugur Helgi Stefánsson, Tómas Arnar Guðmundsson, Oddur Ingólfsson, forseti Raunvísindadeildar, Sigurður Magnús Garðarsson, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs, og Eiríkur Dór Jónsson stjórnarmaður.