Skip to main content
10. október 2017

Tíu milljónir til grunnrannsókna á brjóstakrabbameini

Þrír doktorsnemar og einn vísindamaður við Háskóla Íslands tóku við styrkjum til grunnrannsókna á brjóstakrabbameini á afmælismálþingi styrktarfélagsins Göngum saman sem var haldið 6. október sl. í tilefni af 10 ára afmæli félagsins. Málþingið var haldið í Veröld – húsi Vigdísar og var afar vel sótt.

Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands og verndari Göngum saman, hélt stutt ávarp og bauð fólk velkomið í Veröld og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, setti málþingið. Aðalfyrirlesari var Jórunn Erla Eyfjörð, prófessor emirita, en einnig héldu erindi Gunnhildur Óskarsdóttir, formaður Göngum saman, Birna Þorvaldsdóttir, doktorsnemi við Háskóla Íslands, Rósa Björk Barkardóttir, líffræðingur og klínískur prófessor við Landspítala, og Magnús Karl Magnússon, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands. Ásta Magnúsdóttir, ráðuneytisstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti, flutti ávarp f.h. Kristjáns Þórs Júlíussonar mennta- og menningarmálaráðherra. Fundarstjóri var Friðbjörn Sigurðsson læknir.

Tónlistaratriði settu svip sinn á dagskrána en brassbandið Hljómfríður spilaði í upphafi málþingsins, Auður Hafsteinsdóttir lék á fiðlu og Karlakórinn Fóstbræður söng. Í móttöku að málþingi loknu lék dúettinn Skvísur og vísur nokkur lög.

Styrktarsjóðurinn Göngum saman styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini. Styrkveitingin í ár byggist að mestu leyti á frjálsum framlögum einstaklinga sem hafa lagt hafa sitt af mörkum með þátttöku í styrktargöngu félagsins á Mæðradaginn, Reykjavíkurmaraþoninu og kaupum á söluvarningi félagsins. Einnig hafa ýmis félagasamtök, fyrirtæki og einstaklingar lagt Göngum saman lið en megináhersla er á að öll framlög renni óskipt í styrktarsjóð félagsins.

Hápunktur dagsins var styrkveiting félagsins en fimm nemendur og vísindamenn fengu styrk að þessu sinni: 

•    Anna Karen Sigurðardóttir, doktorsnemi í líf- og læknavísindum við Háskóla Íslands, hlaut eina milljón kr. til verkefnisins „Stýring greinóttrar formgerðar og bandvefsumbreytingar í eðlilegum og illkynja brjóstkirtli“
•    Berglind Eva Benediktsdóttir, dósent við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands, fékk tvær milljónir til verkefnisins „Exósóm sem nýr meðferðarmöguleiki gegn þríneikvæðum brjóstakrabbameinum“
•    Elísabet Alexandra Frick, doktorsnemi í líf- og læknavísindum við Háskóla Íslands, hlaut tvær milljónir til verkefnisins „Hlutverk miR-190b í þróun brjóstakrabbameins“
•    Inga Reynisdóttir, sérfræðingur við meinafræðideild Landspítala, fékk 2,8 milljónir til verkefnisins „Hugsanleg áhrif sjálfsátsgens í framvindu brjóstakrabbameins“
•    Sigurður Trausti Karvelsson, doktorsnemi í líf- og læknavísindum við Háskóla Íslands, hlaut 2,2 milljónir til verkefnisins „Auðkenning efnaskiptabreytinga við bandvefsumbreytingu brjóstaþekju“

Með þessari styrkveitingu hefur Göngum saman úthlutað alls rúmum 80 milljónum króna til grunnrannsókna á brjóstakrabbameini frá stofnun félagsins árið 2007. 

Nánari upplýsingar um félagið er að finna á www.gongumsaman.is

Styrkþegar Göngum saman frá vinstri: Anna Karen Óskarsdóttir, Berglind Eva Benediktsdóttir, Elísabet A. Frick, Sigurður Trausti Karvelsson, og Gunnhildur Óskarsdóttir, formaður Göngum saman.