Skip to main content
16. ágúst 2021

Team Spark frumsýndi bílinn TS21 á Háskólatorgi

Team Spark frumsýndi bílinn TS21 á Háskólatorgi - á vefsíðu Háskóla Íslands

Team Spark, kappaksturs- og hönnunarlið Háskóla Íslands, afhjúpaði í dag nýjan rafknúinn kappakstursbíl sem liðið hefur unnið að undanfarin tvö ár í krefjandi aðstæðum kórónuveirufaraldursins. Bíllinn ber heitið TS21 – Katla og verður grundvöllur keppnisbíls sem liðið vonast til þess að geta farið út með á alþjóðleg kappakstursmót stúdenta á næsta ári.

Bílinn var afhjúpaður á Háskólatorgi í dag að viðstöddum liðsmönnum, bakhjörlum og ýmsum fulltrúum Háskólans. Harðsnúinn hópur 60 nemenda hefur unnið að bílnum en liðsmenn koma flestir úr verkfræðigreinum Háskólans en einnig úr raunvísindum og viðskiptafræði. 

Tíu ár eru síðan hönnunar- og kappaksturslið var stofnað við Háskóla Íslands en það hefur tekið þátt í alþjóðlegum hönnunar- og kappakstursmótum háskólanema undir hatti Formula Student víða um Evrópu, m.a. á keppnisbrautum í Formúlu 1, og m.a. vakið athygli fyrir framúrskarandi hönnun á vængjum. Síðustu tvö sumur hafa slík mót nánast legið niðri vegna kórónuveirufaraldursins.

Faraldurinn hefur jafnframt sett sitt mark á þróunar- og hönnunarstarf Team Spark og því hefur þróun bílsins tekið tvö ár í stað eins líkt og venja er. Liðsmenn hafa þó ekkert slegið af metnaðinum og að sögn Magneu Haraldsdóttur, fráfarandi framkvæmdastjóra liðsins, hefur helsta áskorunin, auk faraldursins, verði ný framleiðsluaðferð burðarvirkis. „Við erum eitt af fyrstu liðunum í Formula Student heiminum til þess að gera bíl með þessari aðferð. Hún er mun fljótlegri og áreiðanlegri heldur en fyrri aðferð og því hefur verið mikil framför í vinnu burðarvirkishópsins síðustu tvö ár,“ segir hún. Burðavirkið er úr áli og framleiðsla þess tekur aðeins tvær vikur í stað 2-3 mánaða áður.

Liðið hefur frá upphafi lagt áherslu á að þróa rafknúinn bíl en hönnun slíks bíls er mun flóknari en þróun bensínsbíls þar sem mun meiri kröfur eru gerðar til rafmagnsbíla en bensínbíla í Formula Student keppnum. Þróunin fer fram í góðu samstarfi við stóran hóp öflugra bakhjarla liðsins úr íslensku atvinnulífi, sem leggja í senn til aðstöðu, búnað og fjármagn til hönnunar bílsins.

„Liðið hefur unnið þrekvirki að ná að framleiða heilan bíl á þessum fordæmalausu tímum en það að stjórna 40 manna kappakstursliði í gegnum fjarfundarbúnað hefur verið mjög krefjandi en á sama tíma ótrúlega lærdómsríkt. Liðið er því mjög spennt að geta loksins afhjúpað nýjustu smíðina sem við erum öll mjög stolt af,“ segir Magnea.

Til stendur að þróa bílinn enn frekar í vetur og prófa aksturseiginleika hans við ýmsar aðstæður. Það kemur væntanlega í hlut stórs hóps nýrra liðsmanna, sem aflað verður nú í haust, að halda áfram vinnu við bílinn en markmiðið er að halda utan með hann á alþjóðleg hönnunar- og kappakstursmót stúdenta næsta sumar ef aðstæður leyfa.

Háskóli Íslands óskar Team Spark innilega til hamingju með nýja bílinn.

Liðsmenn Team Spark við glæsikerruna TS21 - Kötlu sem afhjúpuð var á Háskólatorgi í dag.