Skip to main content
25. júní 2019

Nýtt edX-námskeið um menningarnæmi í menntun

Alþjóðlegir fólksflutningar hafa leitt af sér hnattvæðingu menntunar. Aukinn fjöldi innflytjenda sem og flóttafólks hefur leitt til meiri samskipta milli fólks með mismunandi menningarlegan bakgrunn sem eykur líkur á menningarlegum árekstrum. Í dag standa öll skólastig frammi fyrir þeirri áskorun að aðlaga þjónustu sína að sífellt fjölbreyttari nemendahópum. Það er því mikilvægara en nokkru sinni fyrr að starfsfólk á öllum skólastigum tileinki sér menningarnæmi, veiti nemendum skilning og virðingu og geti aðlagað þjónustu sína þegar þeir vinna með nemendum og foreldrum með fjölbreyttan menningarlegan bakgrunn.

Í nýju netnámskeiði Háskóla Íslands innan edX-samstarfsnetsins er markmiðið að kenna menningarfærni (e. intercultural competency) með því að veita nemendum frekari skilning á mismunandi sjálfsmyndum og menningu og hvernig hægt er að yfirfæra þann skilning á eigin menningu og samfélag. Í lok námskeiðsins ætti nemandi að hafa betri skilning á mikilvægi menningarnæmis í kennslu og aukið menningarfærni sína með því að læra hagnýtar leiðir til að nýta möguleika ólíkrar menningar til lausnaleitar og innblásturs, hvernig vinna á með fjölbreyttar sjálfsmyndir á sanngjarnan hátt og hvernig hægt er að auka virðingu fyrir ólíkum tungumálum og menningu og þannig búa til sanngjarnara skólasamfélag.

Námskeiðið er hluti af verkefni sem styrkt er af Nordplus Horizontal og er leitt af Höfða - friðarsetri Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands og Hönnu Ragnarsdóttur, prófessor í fjölmenningarfræðum við Háskóla Íslands. Að þróun námskeiðsins koma einnig fræðimenn frá Háskólanum í Osló, Háskólanum í Gautaborg, Háskólanum í Helsinki, Álaborgarháskóla og RISEBA Háskóla í Riga, auk sérfræðinga frá sveitarfélögunum Reykjavík, Helsinki, Gautaborg og Osló.

Sem fyrr segir er um að ræða nýtt netnámskeið hjá UicelandX á edX, það er ókeypis og skráning er hafin á vef edX.
 

Logo námskeiðsins