Skip to main content
30. maí 2017

Meistaranemar kynna verkefni á sviði menntavísinda

""

Fjölbreyttar rannsóknir á sviði menntavísinda verða kynntar á málþingi meistaranema sem fram fer í Háskóla Íslands fimmtudaginn 1. júní nk. frá kl. 9-15. Þar munu M.Ed.- og MA-nemar sem útskrifast í júní flytja stuttar kynningar á lokaverkefnum sínum.

Um níutíu erindi í 29 málstofum verða flutt á málþinginu og eru viðfangsefnin af ýmsum toga. Meðal þess sem fjallað verður um er geðræktarstarf, hinsegin mæður, íþrótta- og heilsufræði, lesskilningur, lífsleikni, orðaforðaefling, skapandi starf í leikskólum, snjalltækjanotkun, stjórnun menntastofnana, stærðfræði, tónlist og leiklist í skólastarfi, útikennsla og margt fleira. Flutt verða erindi bæði á íslensku og ensku. 

Mikill vöxtur hefur verið í framhaldsnámi við Menntavísindasvið undanfarin ár en sviðið menntar kennara fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla, uppeldis- og menntunarfræðinga, íþrótta- og heilsufræðinga, tómstunda- og félagsmálafræðinga og þroskaþjálfa.

Ókeypis er á málþingið og er það öllum opið. 

Dagskrá málþingsins og nánari upplýsingar um einstaka málstofur má finna á vefsíðu Háskóla Íslands.

Viðburðurinn á Facebook

Menntakvika