22. desember 2017
Lokað milli jóla og nýárs
Skrifstofa Hugvísindasviðs í Aðalbyggingu verður lokuð milli jóla og nýárs. Síðasti opnunardagur skrifstofunnar fyrir jól er 22. desember en opnað verður að nýju þriðjudaginn 2. janúar kl. 10:00. Starfsfólk Hugvísindasviðs óskar ykkur gleðilegra jóla með þökkum fyrir samstarfið á árinu.
Athygli er vakin á að Þjónustuborð á Háskólatorgi verður opið 27. til 29. desember frá kl. 10-16.
Byggingar Háskóla Íslands verða opnar sem hér segir um jól og áramót:
- 23. desember - 08:00 - 17:00 (Háskólatorg 18:00).
- 24. - 26. desember - lokað.
- 27. - 29. desember - opið 08:00 - 18:00.
- 30. des - 1. janúar - lokað.
- 2. - 3. janúar - opið 08:00 - 18:00.
Í þeim byggingum sem almennur opnunartími er styttri en hér fyrir ofan þá gildir sá tími.