Skip to main content
21. nóvember 2018

Laxdæla saga og siðferðileg menntun

""

***Námskeiði fellur því miður niður vegna lítillar þátttöku***

Hópur fræðafólks frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands, býður upp á námskeið um Laxdæla sögu sem kennsluefni fyrir unglinga. Námskeiðið verður haldið í húsakynnum Háskólans á Akureyri dagana 11. og 12. janúar 2019.

Námskeiðið 

  • er fyrir móðurmálskennara á unglingastigi grunnskóla og við framhaldsskóla og alla aðra sem hafa áhuga á Íslendingasögum sem námsefni fyrir unglinga.
  • hentar jafnt kennurum sem nota óstyttan texta Laxdælu og þeim sem styðjast við endursögn Gunnars Karlssonar sem nýlega hefur verið endurútgefin af Menntamálastofnun.
  • byggist á reynslu af rannsóknarverkefni sem við höfum unnið að í tvö ár í samráði við kennara á unglingastigi við þrjá grunnskóla.

Rannsóknarverkefnið sem námskeiðið byggist á snýst um að kanna hvernig:

  • kynning á siðferðilegum hugtökum glæðir áhuga unglinga á sögunni og hjálpar þeim að skilja hana.
  • rökræða um söguna gefur nemendum tækifæri til að ná valdi á siðferðilegum hugtökum og orðaforða um mannkosti eins og til dæmis heiðarleika, hugrekki, kærleika, sanngirni, sáttfýsi, sjálfsaga, þrautseigju og örlæti.

Laxdæla er notuð sem dæmi bæði vegna þess að hún var kennd við grunnskólana sem rannsóknarhópurinn starfaði með og vegna þess að hún er gott dæmi um sögu sem kallar á samræður um innræti fólks og leggur opnar spurningar fyrir lesanda sinn en svarar þeim ekki. Námskeiðið gagnast samt kennurum sem kjósa að kenna aðrar Íslendingasögur.
 

Tímasetningar:

Föstudagur 11. janúar:  klukkan 15 til 17.
Laugardagur 12. janúar: klukkan 9 til 15 með hádegisverði milli klukkan 12 og 13.

Báða daga fléttast saman fyrirlestrar, samræða og verkefnavinna. 

DAGSKRÁ NÁMSKEIÐSINS 

Þátttökugjald er 5000 kr. og hádegisverður 12. janúar er innifalinn í því.

SKRÁNING HÉR 

Þessi standa að námskeiðinu: Atli Harðarson, Róbert Jack og Þóra Björg Sigurðardóttir.

Atli Harðarson er dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hann hefur ritað bækur og greinar um heimspeki, bókmenntir og námskrárfræði. Atli starfaði sem kennari og stjórnandi við framhaldsskóla um áratuga skeið áður en hann hóf störf við Háskóla Íslands.

Róbert Jack er aðjunkt og nýdoktor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Doktorsritgerð hans fjallar um Platon en hann hefur einnig skrifað um heimspeki sem lífsmáta og heimspekilegar samræðuaðferðir. Róbert hefur kennt ýmsar námsgreinar í framhaldsskóla.

Þóra Björg Sigurðardóttir er doktorsnemi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hún hefur bæði lokið meistaranámi í heimspeki og meistaranámi í ritstjórn og fræðilegri útgáfu. Þóra hefur kennt íslensku og fleiri greinar í grunnskóla. Meðal viðfangsefna sem hún hefur fjallað um eru heimspekileg skrif kvenna á fyrri öldum.

Nánari upplýsingar: Ef þú vilt spyrja einhvers í sambandi við námskeiðið er þér velkomið að senda tölvupóst á atlivh@hi.is

Atli, Róbert og Þóra