Skip to main content
18. júní 2018

Guðrún sæmd heiðursdoktorsnafnbót við Lagadeild

Guðrún Erlendsdóttir, fyrrverandi dósent við Lagadeild og fyrrverandi hæstaréttardómari og forseti Hæstaréttar, var sæmd heiðursdoktorsnafnbót við Lagadeild við hátíðlega athöfn í Norræna húsinu á föstudaginn var.

Guðrún á að baki einstakan starfsferil í lögfræði og er brautryðjandi í íslensku samfélagi. Hún starfaði um árabil sem héraðsdóms- og hæstaréttarlögmaður og var fyrsta konan sem gegndi kennarastöðu í Lagadeild. Guðrún varð aðjunkt 1970, lektor 1976 og skipuð dósent 1979. Kennslu- og rannsóknarsvið Guðrúnar tengdust fjölskyldu- og erfðarétti og jafnréttismálum, þ.m.t. álitamálum sem vörðuðu réttarstöðu sambúðarfólks og réttindi barna.

Guðrún varð fyrst íslenskra kvenna til þess að taka sæti í Hæstarétti Íslands, var settur hæstaréttardómari við réttinn á árunum 1982 til 1983 og skipuð hæstaréttardómari 1986. Hún var forseti réttarins tvisvar sinnum, á árunum 1991 til 1992 og 2002 til 2003. Eftir að Guðrún lét formlega af störfum sem hæstaréttardómari 2006 hefur hún margsinnis verið settur dómari við réttinn í lengri eða skemmri tíma, nú síðast vorið 2018. Ekki leikur vafi á að framlag Guðrúnar til íslensks samfélags er umtalsvert. Er því einkar vel við hæfi að hún verði fyrsti heiðursdoktor Lagadeildar úr hópi kvenna, sérstaklega nú þar sem 110 ár eru liðin frá því að Lagaskólinn, forveri Lagadeildar, tók til starfa 1908.

Guðrún Erlendsdóttir tekur við heiðursdoktorsnafnbót úr hendi Aðalheiðar Jóhannsdóttur, forseta Lagadeildar.
Guðrún ávarpar gesti við athöfnin aí Norræna húsinu
Daði Már Kristófersson, forseti Félagsvísindasviðs, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, Aðalheiður Jóhannsdóttir, forseti Lagadeildar, Guðrún Erlendsdóttir og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands