Íslenska sem annað líf: Ráðstefna á vegum námsgreinarinnar Íslenska sem annað mál

Hvenær hefst þessi viðburður: 
10. febrúar 2012 - 13:00 to 16:15

Árlega stunda yfir tvö hundruð nemendur víðsvegar að úr heiminum nám í íslensku sem öðru máli við Háskóla Íslands. Hluti þeirra ílendist hér að loknu námi, aðrir halda aftur utan en í báðum tilvikum er algengt að námsárin hafi margháttuð áhrif á framtíð nemenda; íslenskan verður þeirra annað líf. Í hópi útskrifaðra nemenda eru t.d. margir af fremstu þýðendum íslenskra bókmennta á erlendar tungur en einnig fólk sem hefur haslað sér völl víða í íslensku samfélagi.  En hvað felst í því að læra íslensku á fullorðinsárum, hvaða áskoranir mæta nemendum og hvaða tækifæri og hindranir bíða þeirra að námi loknu? Föstudaginn 10. febrúar nk. stendur námsgreinin Íslenska sem annað mál á Hugvísindasviði Háskóla Íslands fyrir ráðstefnunni „Íslenska sem annað líf“ þar sem átta fyrrum nemendur líta yfir farinn veg og ræða um reynslu sína og verkefni, ýmist innan og utan háskólans.

Fyrirlesarar eru Aleksandra M. Cieślińska, Cynthia Trililani, Ingrid Kuhlman, Irma Matsjavariani, Karen Ralston, Pétur Knútsson, Róland R. Assier og Stoyanka Tanja G. Tzoneva.   

Ráðstefnan fer fram í stofu 101 í Lögbergi frá kl. 13.00-16.15 og er aðgangur ókeypis og öllum opinn.

 

Dagskrá

Fundarstjóri: Sigríður Þorvaldsdóttir, aðjunkt

 Kl. 13.00          Setning: Margrét Jónsdóttir, prófessor

Líf í Háskóla Íslands

Kl. 13.05          Pétur Knútsson: Að læra að þúa

Kl. 13.20          Karen Ralston. Frá útlendingum til einhverfu. Tillaga að málfræðikennslu fyrir einstaklinga með einhverfu og málhömlun

Kl. 13.35          Cynthia Trililani:  Staðalímyndir asískra kvenna á Íslandi og endurspeglun þeirra í bókmenntum og kvikmyndum  

Kl. 13.50          Aleksandra M. Cieślińska: Syngjandi í íslenskuna

Kl. 14.05          Umræður

Kl. 14.20          Kaffi

Líf í öðru samfélagi

Kl. 14.45          Irma Matsjavariani: Reynsla mín
Kl. 15.00          Stoyanka Tanja G. Tzoneva: Líf án regnhlífar

Kl. 15.15          Róland R. Assier : Lífið er saltfiskur

Kl. 15.30          Ingrid Kuhlman: Veist þú nokkuð um þetta?

Kl. 15.45          Umræður

Kl. 16.10          Ráðstefnuslit:  Jón Karl Helgason, dósent

deila á facebook