Skip to main content

Doktorsvörn í umhverfisverkfræði - Darri Eyþórsson

Doktorsvörn í umhverfisverkfræði - Darri Eyþórsson - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
1. september 2023 14:30 til 16:30
Hvar 

Askja

Stofa 132

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Streymi

Doktorsefni: Darri Eyþórsson

Heiti ritgerðar: Þróun hnattrænna snjóalaga í fortíð og framtíð - mælt með fjarkönnun og spáð með dreifðum reiknilíkönum (Historical and future trends in global snow conditions – observed by remote sensing and forecasted by spatio-temporal modelling)

Andmælendur: 
Dr. Halldór Björnsson, hópstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands
Dr. Konstantinos Andreadis, lektor við University of Massachusetts, Bandaríkjunum

Leiðbeinandi: Dr. Sigurður Magnús Garðarsson, prófessor við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild HÍ og forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ

Einnig í doktorsnefnd:
Dr. Bart Nijssen, prófessor og deildarforseti Umhverfis- og byggingarverkfræðideildar, University of Washington
Dr. Óli Grétar Blöndal Sveinsson, forstöðumaður þróunar og vatnsafls hjá Landsvirkjun
Dr. Birgir Hrafnkelsson, prófessor við Raunvísindadeild Háskóla Íslands

Doktorsvörn stýrir: Dr. Guðmundur Freyr Úlfarsson, deildarforseti Umhverfis- og byggingarverkfræðideildar HÍ.

Ágrip

Snjóauðlindir víðsvegar um heiminn eru nú breytingum undiropnar í kjölfar hnattrænna loftlagsbreytinga. Þessar auðlindir eru mikilvægar víðsvegar og breytingar á eðli þeirra hafa haft og munu halda áfram að hafa áhrif á mannleg samfélög og vistkerfi á kvöldum svæðum. Rannsókn sú er birt er í þessari ritgerð fjallar um greiningu og samanburð á sögulegri þróun loftlags og snjós og gerð forspár um það hvernig væntar loftlagsbreytingar munu hafa áhrif á snjóauðlindir út 21 öldina miðað við mismunandi sviðsmyndir í hlýnun. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á að víðtækar breytingar hafa þegar orðið á snjóþekju á Norður Hveli jarðar (NH) frá byrjun 21 aldarinnar útfrá fjarkönnunargögnum frá MODIS gervihnattamælinum. Spáð var fyrir um framtíðarþróun snjóauðlinda á NH fyrir tímabilið 1950-2100 með Snow17 snjólíkaninu útfrá 21 CMIP5 loflagslíkönum fyrir tvö hlýnunartilvik (RCP45 og RCP85). Niðurstöður líkansins gefa til kynna að tíðni snjóhulu (SCF) muni almennt minnka verulega um allt NH en að hinsvegar, muni meðal rúmál vatns sem geymt er í snjóalögum NH aukast lítillega í byrjun tímabilsins, aðallega vegna aukinnar snjókomu og norðlægum breiddargráðum innan norðurheimskautsbaugs, en minnka svo aftur að því sem var um 1950 fyrir RCP45 en 10% neðar en svo fyrir RCP85. Þróun í loftlagi og snjóauðlindum var rannsökuð sérstaklega á Íslandi, sem leiddi í ljós tölfræðilega marktækta aukningu á snjóhulu stórum svæðum frá aldamótum, spá um þróun snjóauðlinda út 21 öldina gerir hinsvegar ráð fyrir verulegri minnkun snjóhulu í öllum hæðarbilum á Íslandi.

Um doktorsefnið

Darri Eyþórsson lauk BS námi í efnaverkfræði frá HÍ árið  2011 og MS námi í umverfisverkfræði frá sama skóla árið 2015.

Hann starfaði við nýsköpun og rannsóknir hjá Carbon Recycling International að loknu BS námi og samhliða MS námi. Samhliða doktorsnámi hefur hann starfað hjá Hagstofu Íslands, Landsvirkjun, Hagfræðistofnun HÍ, Verkís verkfræðistofu og Loftlagsráði Íslands. Einnig hefur hann sinnt kennslu við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild HÍ og námsbraut í umhverfis- og auðlindafræði frá árinu 2017. Hann hefur einnig kennt við School of International Training frá árinu 2022.

Darri Eyþórsson

Doktorsvörn í umhverfisverkfræði - Darri Eyþórsson