Skip to main content

Reglur nr. 551-2010

Reglur um Hagfræðistofnun Háskóla Íslands, nr. 551/2010

PDF-útgáfa

1. gr.  Almennt.

Hagfræðistofnun Háskóla Íslands er vísindaleg rannsóknastofnun sem starfrækt er af Háskóla Íslands.


Stofnunin heyrir undir Hagfræðideild á Félagsvísindasviði og er vettvangur rannsókna- og þróunarstarfs í hagfræði og skyldum greinum.

2. gr.  Hlutverk.

Hlutverk Hagfræðistofnunar er:

  1. að afla þekkingar á hagkerfi og þjóðarbúskap Íslendinga,
  2. að efla tengsl rannsókna og kennslu og samhæfa rannsóknir í hagfræði sem unnið er að við Háskóla Íslands, 
  3. að styðja kennslu og þjálfun í vísindalegum vinnubrögðum og veita nemendum í framhaldsnámi aðstöðu og búnað til rannsóknarstarfa eftir því sem kostur er, 
  4. að stuðla að tengslum háskólans við atvinnu- og þjóðlíf og innlent og erlent vísindasamfélag, 
  5. að sinna þjónustuverkefnum og ráðgjöf í hagfræði og skyldum greinum, 
  6. að annast útgáfu og aðra kynningu á niðurstöðum hagfræðirannsókna, 
  7. að gangast fyrir ráðstefnum, fyrirlestrum, námskeiðum, endurmenntun og hvers kyns annarri starfsemi, sem er til þess fallin að útbreiða hagfræðilega þekkingu.

3. gr.  Aðstaða.

Háskóli Íslands lætur stofnuninni í té starfsaðstöðu, það er húsnæði og búnað, svo sem kostur er.


Stofnunin veitir starfsliði sínu skv. 7. gr. aðstöðu og nauðsynlegan búnað til rannsókna eftir því sem unnt er.

4. gr.  Stjórn.

Forseti Félagsvísindasviðs skipar hagfræðistofnun fimm manna stjórn. Formaður og þrír aðrir stjórnarmenn skulu tilnefndir til þriggja ára af deildarfundi Hagfræðideildar. Formaður skal vera prófessor og að minnsta kosti þrír hinna kjörnu stjórnarmanna skulu vera akademískir starfsmenn háskólans (kennarar eða sérfræðingar), enda séu þeir ekki ráðnir til Hagfræðistofnunar. Einn stjórnarmaður skal kjörinn samkvæmt tilnefningu nemenda í Hagfræðideild til eins árs í senn. Í stjórn skulu sitja bæði karlar og konur og skal þess gætt að hlutfall kynjanna sé ekki minna en 40%, sbr. 15. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.


Stjórnin skiptir að öðru leyti með sér verkum.


Ef ekki er ráðinn forstöðumaður til stofnunarinnar kemur formaður stjórnar fram fyrir hönd stofnunarinnar og annast daglegan rekstur hennar.

5. gr.  Stjórnarfundir.

Formaður stjórnar boðar stjórnarfundi bréflega, eða í tölvupósti, með þriggja daga fyrirvara. Fundarboð skal greina dagskrá fundar.


Skylt er að boða stjórnarfund óski tveir eða fleiri stjórnarmenn þess. Sama gildir ef forseti Hagfræðideildar eða rektor ber fram slíka ósk og hafa þeir þá málfrelsi og tillögurétt á fundinum, en ekki atkvæðisrétt.


Falli atkvæði jöfn á stjórnarfundi ræður atkvæði formanns eða þess sem gegnir formannsstörfum.


Halda skal gerðabók stjórnar og skulu staðfestar fundargerðir færðar í hana. Afrit fundargerða skulu send forseta Hagfræðideildar.


Forstöðumaður situr stjórnarfundi með málfrelsi og tillögurétt en án atkvæðisréttar.

6. gr.  Verkefni stjórnar.

Stjórnin tekur stefnumarkandi ákvarðanir fyrir stofnunina og setur henni rannsóknarstefnu. Stjórnin sker úr í vafaatriðum sem upp kunna að koma og varða innri starfsemi stofnunarinnar. 


Stjórnin ber ábyrgð á fjármálum stofnunarinnar gagnvart deild og forseta fræðasviðs, samþykkir rekstrar- og fjárhagsáætlun og gerir tillögu til deildar og forseta fræðasviðs um fjárveitingar og skiptingu þeirra ásamt skiptingu annarra tekna.


Stjórnin setur stofnuninni starfsreglur þar sem m.a. skal kveðið á um eftirfarandi:

  1. Meðferð rannsóknastyrkja er starfsmenn afla, m.a. með tilliti til hlutdeildar stofnunar í tekjum og kostnaði.
  2. Hvenær og með hvaða hætti einstakir starfsmenn geta komið fram út á við sem starfsmenn Hagfræðistofnunar.
  3. Annað, sem þurfa þykir. Stjórnin gerir tillögu að samþykktum um þjónusturannsóknir sem háskólaráð staðfestir

7. gr.  Forstöðumaður og starfsmenn.

Forseti Félagsvísindasviðs ræður stofnuninni forstöðumann að fenginni tillögu stjórnar og með samþykki deildar. Forstöðumaður skal að jafnaði uppfylla hæfisskilyrði prófessors í hagfræði. Forseti Félagsvísindasviðs setur forstöðumanni erindisbréf.


Forstöðumaður annast daglegan rekstur stofnunarinnar og sér um framkvæmd á þeim málum, sem stjórnin felur honum.


Um ráðningu annars starfsfólks fer eftir ákvæðum reglna fyrir Háskóla Íslands. Sé um að ræða ráðningu í starf og ekki er gert ráð fyrir því starfsheiti í reglunum, fer stjórn stofnunarinnar eða forstöðumaður í umboði hennar með ráðningarmálið.

8. gr.  Fjármál.

Tekjur Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands eru eftirfarandi:

  1. framlag frá Hagfræðideild,
  2. framlög frá öðrum deildum háskólans ef því er að skipta, 
  3. styrkir til einstakra verkefna, 
  4. greiðslur fyrir þjónustustarfsemi, 
  5. tekjur af útgáfustarfsemi, 
  6. aðrar tekjur, t.d. gjafir og framlög úr ríkissjóði eftir því sem kveðið kann að vera á um í fjárlögum.

Reikningshald stofnunarinnar skal vera hluti af reikningshaldi háskólans. Fjárhagsáætlun skal kynnt og lögð fram til samþykktar forseta Félagsvísindasviðs og á deildarfundi.


Sé um að ræða útselda þjónustu, sem veitt er í samkeppni við einkaaðila, skal sú starfsemi fjárhagslega afmörkuð frá öðrum rekstri stofnunarinnar og þess gætt að sá rekstur sé ekki niðurgreiddur með öðrum tekjum, í samræmi við ákvæði samkeppnislaga.


Um stjórnunar- og aðstöðugjald af sértekjum fer eftir ákvæðum 73. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands.

9. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð hefur sett á grundvelli heimildar í 3. mgr. 11. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, að fenginni tillögu Hagfræðideildar og stjórnar Félagsvísindasviðs, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 738/2001 um Hagfræðistofnun Háskóla Íslands.

Háskóla Íslands, 15. júní 2010.