Verðlaunuð fyrir BA-ritgerð í dönsku

Guðrún Tinna Ólafsdóttir hlaut nýlega verðlaun fyrir BA-ritgerð sína í norrænni ritgerðasamkeppni kennaranema sem efnt var til á vegum Nordisk Sprogkampagne. Guðrún Tinna lauk B.A. prófi í dönsku vorið 2010 og viðbótardiplóma í kennslufræði síðastliðið vor, hvoru tveggja frá Háskóla Íslands.

Verðlaunaritgerð Guðrúnar Tinnu ber heitið "Kan du lide dansk? En undersøgelse af unge islændinges holdning til danskfaget i folkeskolen." Þar kannaði hún viðhorf unglinga á Íslandi til dönsku og dönskukennslu og hvaða þættir hefðu áhrif á viðhorf þeirra.

Guðrún Tinna veitti verðlaununum viðtöku á ráðstefnu Nordisk Sprogkampagne sem haldin var á Nordatlantens Brygge í Kaupmannahöfn 30. nóvember síðastliðinn. Önnur stúlka, Bettina Dam Rüger, hlaut einnig verðlaun fyrir verkefni um kennslu grannmála fyrir börn.

Verðlaunaupphæðin nam tíu þúsund dönskum krónum, jafnvirði um 210 þúsund íslenskra króna.

deila á facebook