Lagadeild Háskóla Íslands og Lagadeild Kaupmannahafnarháskóla undirrituðu í dag samning um sameiginlega doktorsgráðu í lögfræði. Samningurinn gerir ráð fyrir því að deildirnar standi saman að þriggja ára doktorsnámi á ensku fyrir framúrskarandi lögfræðinga sem hafa áhuga á akademískum störfum.
Skipuð verður sérstök verkefnisstjórn yfir náminu með fulltrúum beggja deilda. Hún mun hittast árlega og ákveða hversu marga doktorsnema hægt er að taka inn árið eftir, en þar er horft til fjárhags og rannsóknaraðstöðu. Hlutverk nefndarinnar verður jafnframt að auglýsa lausar stöður doktorsnema en samskipti við umsækjendur verða í höndum fulltrúa á vegum Kaupmannahafnarháskóla.
Gert er ráð fyrir að doktorsnemarnir sinni rannsóknum í tvö ár af námstímanum við annan háskólann og eitt ár við hinn en nemendur geta samið um að hliðra því til. Þó þurfa nemar að dvelja minnst eitt ár við hvora deild.
Um er að ræða tímamót í lagakennslu á Íslandi og viðurkenningu á þeim góða árangri sem náðst hefur í starfi Lagadeildar Háskóla Íslands á undanförnum árum og áratugum. Lagadeild Kaupmannahafnarháskóla er ein fremsta lagadeild á Norðurlöndum og skapar samningurinn mikilvæg tækifæri til náins samstarfs lagadeildanna á næstu misserum.
Gert er ráð fyrir að fyrstu nemendurnir verði teknir inn í námið skólaárið 2012-2013.
Samningurinn markar tímamót
Sendinefnd frá Lagadeild Kaupmannahafnarháskóla kom hingað til lands til þess að staðfesta samninginn og Henrik Dam, forseti lagadeildarinnar, undirritaði hann fyrir hönd skólans. Fyrir hönd Háskóla Íslands rituðu Róbert Spanó, prófessor og forseti Lagadeildar, Ólafur Þ. Harðarson, forseti Félagsvísindasviðs, og Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, undir samninginn.
„Samningurinn er liður í þeirri stefnu Lagadeildar að efla tengsl hennar og samstarf á alþjóðavettvangi samhliða því að styrkja innviði hennar með öflugu doktorsnámi. Við gerum ráð fyrir því að samstarf deildanna verði mikið á næstu árum og ekki er útilokað að frekari ákvarðanir verði teknar um samstarf deildanna á öðrum sviðum. Undirritun samningsins markar því sannarlega tímamót í lagakennslu hér á landi og verður vonandi til að efla enn frekar starf Lagadeildar Háskóla Íslands“ segir Róbert Spanó, prófessor og forseti Lagadeildar.
