Með fróðleik í fararnesti

 

Í tilefni aldarafmælis Háskóla Íslands taka skólinn og Ferðafélag Íslands höndum saman og standa fyrir reglulegum gönguferðum á afmælisárinu. Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands, segir félagið lengi hafa haft gott samstarf við Háskóla Íslands og að margir fararstjórar félagsins hafi verið kennarar við skólann. „Þar mætti til dæmis nefna Gísla Má Gíslason, Pétur Ármannsson og Þóru Ellen Þórhallsdóttur.

Þá hafa margir fræðimenn innan skólans unnið við árbók félagsins með einhverjum hætti, annaðhvort sem höfundar, eins og t.d. Páll Sigurðsson lagaprófessor, sem einnig var um tíma forseti félagsins, eða setið í ritnefnd árbókarinnar, eins og t.d. Guðrún Kvaran og Eíríkur Þormóðsson,“ segir hann og tekur jafnframt fram að hann fagni samstarfinu mjög. Markmið þess er að færa almenningi afmælisgjöf sem felst í fræðslu og hollri útivist. Um leið er áhugi vakin á fjölbreyttri starfsemi skólans og Ferðafélags Íslands.

„Það er auðvitað stórskemmtilegt og frábært að geta veitt almenningi aðgang að öllum þeim fróðleik sem þessir góðu framsögumenn búa yfir en allar tólf ferðirnar hér í Reykjavík og nágrenni eru ókeypis,“ segir Páll. Reynsla og þekking fararstjóra Ferðafélagsins og þekking kennara og vísindamanna Háskólans blandast saman í áhugaverðum gönguferðum um höfuðborgarsvæðið og næsta nágrenni þess. Gönguferðirnar verða tólf talsins, eins og fyrr segir, og taka hver um tvær klukkustundir. 

Vegna óhagstæðra veðurskilyrða þarf að flytja fyrstu gönguna sem vera átti á Reykjaborg laugardaginn 29. janúar. Vegna rigningar undanfarið er jarðvegur í Hafrahlíð og við Reykjaborg orðinn mjög blautur auk þess sem frost er að fara úr jarðvegi þannig að göngufólk kæmi til með að sökkva í mela og viðkvæman gróður á gönguleiðinni og þar með er hætta á gróðurspjöllum. Því hefur verið ákveðið að flytja gönguna á Úlfarsfell og leggja af stað frá Leirtjörn kl. 11:15.

Ef komið er frá Reykjavík er ekið eftir Vesturlandsvegi í átt að Mosfellsbæ. Rétt áður en komið er að Úlfarsfelli er beygt af hringtorgi eftir vegi merktum Hafravatn (rétt við stórt hús merkt Bauhaus). Fljótlega er beygt til vinstri eftir vegi sem nefnist Mímisbrunnur og ekið eftir honum um 1,5 km vegalengd að bílastæði við Leirtjörn þar sem gangan hefst. Gengið verður á Stórahnúk og þaðan fram á vesturbrún fjallsins þar sem er góður útsýnisstaður. Þaðan verður haldið til baka að Leirtjörn. Áætlaður göngutími er um 2 klst.

Hér má sjá frekari upplýsingar um allar göngur FÍ og HÍ.

deila á facebook