Áætlun Evrópusambandsins um stuðning við stefnumörkun í samskipta- og upplýsingatækni, ICT Policy Support Programme, hefur veitt styrk að upphæð 2.250 þúsund evrur (tæpar 344 milljónir króna á núverandi gengi) til verkefnisins META-NORD sem Norðurlöndin fimm og Eystrasaltslöndin þrjú standa að. Það er eitt þriggja systurverkefna (í Norður-, Austur- og Suður-Evrópu) sem eru útvíkkun á verkefninu META-NET og hafa að markmiði að efla málleg gagnasöfn (language resources, s.s. textasöfn og orðasöfn af ýmsu tagi) sem nýst geti í margvíslegum máltækniverkefnum. Ekki er ætlunin að byggja slík söfn frá grunni, heldur ljúka við söfn sem eru í vinnslu, staðla þau og gera aðgengileg. Styrkupphæðin nemur helmingi af áætluðum heildarkostnaði við verkefnið.
Megintilgangur verkefnisins er að skapa tæknilegar forsendur fyrir margmála upplýsingasamfélagi í Evrópu þar sem allir geti notað móðurmál sitt við öflun og úrvinnslu hvers kyns upplýsinga. Máltæknifyrirtækið Tilde í Riga í Lettlandi leiðir verkefnið sem hefst 1. febrúar 2011 og stendur í tvö ár. Aðrir þátttakendur eru háskólarnir í Kaupmannahöfn, Bergen, Gautaborg, Helsinki, Tartu og Vilnius, auk Máltækniseturs sem er stofa innan Málvísindastofnunar Háskólans rekin í samstarfi við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Stjórnandi íslenska hlutans er Eiríkur Rögnvaldsson prófessor, en verkið verður unnið í nánum tengslum við Árnastofnun. Hlutur Máltækniseturs af styrknum er um 202 þúsund evrur, tæplega 31 milljón króna á núverandi gengi.
Máltæknisetur fær rúmlega 30 milljóna Evrópustyrk
