Stúdentaráð Háskóla Íslands og Háskóli Íslands standa fyrir fjölbreyttri dagskrá á morgun, fullveldisdaginn 1. desember. Hátíðahöld fyrir nemendur á Háskólatorgi og hátíð fyrir brautskráða doktora í Hátíðasal Aðalbyggingar eru meðal viðburða dagsins auk þess sem ný síða með minningum og vangaveltum fyrrverandi stúdenta við Háskóla Íslands verður opnuð.
Stúdentar við Háskóla Íslands hafa haldið fullveldisdaginn hátíðlegan allt frá árinu 1922. Dagskráin 1. desember í ár hefst kl. 10:20 á því að stúdentar ganga frá Háskóla Íslands að leiði Jóns Sigurðssonar í Hólavallakirkjugarði þar sem blómsveigur verður lagður á leiðið að viðstöddum Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, og Kristínu Ingólfsdóttur, rektor Háskóla Íslands. Þar flytur Guðfinnur Sveinsson, stúdent við Háskóla Íslands, hugvekju og hópur úr Háskólakórnum flytur lag. Að því loknu, kl. 11:00, standa guðfræðinemar fyrir messu í Háskólakapellunni í Aðalbyggingu háskólans.
Hátíðahöld stúdenta halda svo áfram á á Háskólatorgi kl. 12:00. Þar mun forseti Íslands ávarpar gesti, Félagsstofnun stúdenta afhendir styrki og Gleðisveit Lýðveldisins leikur m.a. jólalög. Háskóli Íslands býður stúdentum jafnframt upp á súpu, kakó og piparkökur.
Í ár fagnar Háskóli Íslands aldarafmæli sínu og eru 89 ár liðin frá því stúdentar héldu 1. desember í fyrsta sinn hátíðlegan. Af því tilefni vill Stúdentaráð hvetja alla stúdenta Háskóla Íslands fyrr og síðar til að hugsa til stúdentsáranna og rita minningar og vangaveltur um þau á nýja síðu, www.student.is/studentsarin. Síðan verður formlega opnuð á fullveldisdaginn.
Hátíð brautskráðra doktora haldin í fyrsta sinn
Eftir hádegið, kl. 13:00, efnir Háskóli Íslands í fyrsta sinn til Hátíðar brautskráðra doktora í Hátíðasal Aðalbyggingar. Þar munu þeir doktorsnemar sem varið hafi ritgerðir sínar við Háskóla Íslands undanfarið ár taka við gullmerki háskólans að viðstöddum forseta Íslands, menntamálaráðherra, rektor háskólans, forsetum fræðasviða og deildarforsetum. Stefnt er að því að hátíðin verði árlegur viðburður hér eftir.
Doktorsnám við Háskóla Íslands hefur verið eflt verulega síðustu ár og fjöldi brautskráðra doktora hefur margfaldast á örfáum árum. Á aldarafmælinu munu 50 doktorsvarnir fara fram og hafa þær aldrei verið fleiri á einu ári. Hátíð brautskráðra doktora 1. desember er ætlað að vekja athygli á vexti doktorsnámsins og heiðra þá doktora sem brautskráðst hafa frá háskólanum.
Nánari upplýsingar um dagskrá á fullveldisdaginn er að finna á viðburðavef Háskóla Íslands.
