Skip to main content
31. janúar 2015

Einn + níu sigurvegarar í í Lego-hönnunarkeppni FLL

Liðið Einn + níu úr Grunnskóla Reyðarfjarðar sigraði í tækni- og hönnunarkeppni grunnskólanemenda, FIRST LEGO League (FLL), sem fram fór í Háskólabíói í dag. Liðið tryggði sér um leið þátttökurétt á heimsmeistaramóti FIRST LEGO League í St. Louis í Bandaríkjunum í vor.

Metfjöldi liða tók þátt í keppninni að þessu sinnu, eða 18 lið víðs vegar af landinu. Í hverju liði voru á bilinu 6-10 manns á aldrinum 9-16 ára og þátttakendur því samtals hátt í 200. Þeir hafa undirbúið sig að kappi fyrir keppnina allt frá því að þátttökugögn voru send út í október síðastliðnum.

Keppninni er skipt í nokkra hluta þar sem reynir á margs konar hæfileika enda markmið keppninnar að efla færni í vísindum, verkfræði og tækni, örva nýsköpun og byggja upp hæfileika eins og sjálfstraust og samskipta- og forystuhæfni. Keppninni er valið ákveðið þema ár hvert og að þessu sinni var þemað „Skóli framtíðarinnar“. Meðal verkefna keppenda var að forrita vélmenni úr tölvustýrðu Mindstorms LEGO-i til að leysa tiltekna þraut sem tengist þemanu og þá áttu keppendur að gera vísindalega rannsókn á ákveðnu efni sem einnig tengdist þemanu og jafnframt að halda ítarlega dagbók um undirbúning fyrir keppnina. Enn fremur fluttu keppnisliðin frumsamið skemmtiatriði og þá þurftu þau að gera grein fyrir því hvernig þau forrituðu vélmennið sitt.

Þegar stigin í keppninni höfðu verið tekin saman reyndist liðið Einn + níu sigurvegari, en það er skipað níu stúlkum og einum dreng úr Grunnskóla Reyðarfjarðar. Í viðurkenningarskyni fyrir sigurinn hlaut liðið forláta LEGO-bikar og 150 þúsund króna ferðastyrk frá aðalbakhjarli keppninnar, Nýherja, en með sigrinum tryggði liðið sér jafnframt  keppnisrétt á heimsmeistaramóti FIRST LEGO League sem haldið verður í St. Louis í Bandaríkjunum í vor. Það hlaut enn fremur 100 þúsund króna styrk til fararinnar frá leiktækjafyrirtækinu Krumma.  Einn + níu var einnig valin besta liðsheildin en auk þess voru veitt verðlaun í eftirtöldum flokkum:

Besta dagbókin: Gemsarnir úr Grunnskóla Hornafjarðar

Besta lausn í hönnun og forritun vélmennis: LegóFásk úr Gunnskóla Fáskrúðsfjarðar

Vélmennakapphlaup: Lið Breiðholtsskóla

Besta rannsóknaverkefnið: Nafnlausar úr Brúarásskóla á Fljótsdalshéraði

Allir þátttakendur í keppninni fengu enn fremur FLL-medalíu í viðurkenningarskyni.

Þetta var í níunda sinn sem FIRST LEGO League tækni- og hönnunarkeppnin var haldin. Háskóli Íslands heldur utan um keppnina og meginbakhjarl er Nýherji.
 

Liðið Einn + níu úr Grunnskóla Reyðarfjarðar kom, sá og sigraði í LEGO-hönnunarkeppninni.
Gemsarnir úr Gunnskóla Hornafjarðar fengu verðlaun fyrir bestu dagbókina.
LegóFásk úr Gunnskóla Fáskrúðsfjarðar fékk verðlaun fyrir besta lausn í hönnun og forritun vélmennis.
Nafnlausar úr Brúarásskóla fengu verðlaun fyrir besta rannsóknarverkefnið.
Lið Breiðholtsskóla fékk flest stig í vélmennakapphlaupinu.