Chomsky fyllti Háskólabíó

Fullt var út úr dyrum á báðum fyrirlestrum bandaríska málvísindamannsins og samfélagsrýnisins dr. Noams Chomsky í Háskólabíói í dag. Upptökur af fyrirlestrunum verða aðgengilegar á vef Háskóla Íslands innan skamms.

Í fyrra erindinu, sem bar yfirskriftina „The ´Generative Enterprise´: Its origins, goals, prospects“, fór Chomsky yfir hugmyndir sínar í málvísindum en hann lagði grunninn að þeirri stefnu í málvísindum sem hefur verið nefnd málkunnáttufræði á íslensku. Sú stefna olli straumhvörfum í málvísindum, en eitt meginatriði hennar er að öll tungumál séu sama eðlis, maðurinn hafi meðfæddan hæfileika til að tileinka sér þau og það greini hann frá dýrum. Erindið var hluti af námskeiði við Hugvísindasvið Háskóla Íslands í haust þar sem fjallað er um áhrif hugmynda Chomskys á rannsóknir og umræðu í mannlegum fræðum. Erindið hélt Chomsky í sal 2 í Háskólabíói í hádeginu og var salurinn þétt setinn og komust færri að en vildu. Má áætla að vel á þriðja hundrað manns hafi hlýtt á hann.

Chomsky kom hingað sem öndvegisfyrirlesari Hugvísindasviðs á aldarafmæli Háskóla Íslands og í öndvegisfyrirlestrinum, sem fluttur var í stóra sal Háskólabíós kl. 15, fjallaði hann um stöðu heimsmálanna, lýðræði, vald og ofbeldi. Erindið bar yfirskriftina ,,The two 9/11s: Their historical significance“.

Minntist hann þess að senn eru tíu ár frá árásunum á Tvíburaturnana og Pentagon í Bandaríkjunum og benti á að 11. september hefði allt aðra merkingu í Chile. Þann dag árið 1973 hefði herforingjastjórn undir forystu Augustos Pinochets hrakið Salvador Allende forseta frá völdum í landinu með stuðningi Bandaríkjastjórnar og við hefði tekið ógnarstjórn. Chomsky var mjög gagnrýninn á utanríkisstefnu Bandaríkjanna í erindi sínu í Háskólabíói í dag og gagnrýndi m.a. að núverandi stjórnvöld í Bandaríkjunum hefðu látið taka Osama bin Laden af lífi í stað þess að handtaka hann og rétta yfir honum.

Óhætt er að segja að mikill áhugi hafi verið fyrir erindinu og var fullt út úr dyrum í stóra sal Háskólabíós og sömuleiðis í sal 1 þangað sem erindi Chomskys var varpað á tjald. Enn fremur sátu fjölmargir í anddyri Háskólabíós og fylgdust með af skjáum þar.

Erindi Chomskys voru tekin upp og hægt er að nálgast þau á myndbandavef Háskóla Íslands.

deila á facebook