Skjalasafn

Skjalasafn Háskóla Íslands

Hlutverk skjalasafns Háskólans er að safna og varðveita skjöl og aðrar heimildir Háskóla Íslands og stofnana hans til notkunar fyrir Háskólann, stjórnvöld, stofnanir og einstaklinga, sjá reglur skjalasafns Háskóla Íslands.

Safninu er heimilt að taka til varðveislu einkaskjalasöfn kennara, sérfræðinga og annarra sem gætu haft gildi fyrir fræðilegar rannsóknir.

Skjalasafnið tekur til vörslu hluti, tæki og minjar sem tengjast sögu Háskóla Íslands og stofnana hans. Minjanefnd rækir þetta hlutverk safnsins ásamt forstöðumanni, sjá Minjanefnd Háskólans

Aðsetur og opnunartími

Skjalasafnið er staðsett í Aðalbyggingu við Suðurgötu, á millilofti undir Hátíðarsal.

Skjalasafnið er opið alla virka daga frá 9:00-15:00, en lokað í hádeginu.

Starfsfólk skjalasafns

Þjónusta skjalasafnsins

Skjalasafn HÍ veitir margs konar þjónustu; annast skjalastjórn við Háskólann og stýrir skjalastjórnarhugbúnaði, leiðbeinir starfsmönnum Háskólans um skjalavörslu og skjalagerð, þ.e. flokkun, skráningu pappírsskjala og rafrænna. Skjalasafnið útvegar starfsfólki stjórnsýslu skjalabúnað, tekur á móti og varðveitir skjöl, tæki og muni og veitir upplýsingar um sögu skólans.

Á innri vef skólans er að finna ýmsar leiðbeiningar og handbækur um skjalamál í Háskóla Íslands.

Aðstaða og búnaður

 Á skjalasafni er aðstaða fyrir gesti til að blaða í skjölum og fletta upp í ritum safnsins, m.a. árbókum Háskólans, kennsluskrám og ýmsu útgáfuefni. Skjöl úr safninu eru ekki lánuð út en þar eru bæði ljóstritunarvél og skanni, auk tölvuaðstöðu þar sem leita má í skjalaskrám.

NÁMAN - skjala- og hópvinnukerfi Háskóla Íslands

Stjórnsýsla Háskóla Íslands notar skjala- og hópvinnukerfið GoPro frá Hugviti hf. sem hefur fengið nafnið NÁMAN innan Háskólans. Skjalasafnið hefur umsjón með kerfinu með aðstoð sérfræðinga frá Hugviti hf. og Reiknistofnun Háskóla Íslands.

BIRTINGUR - myndasafn Háskóla Íslands

Skjalasafn Háskóla Íslands hefur umsjón með skráningu mynda Háskólans. Myndasafn HÍ.

NUAS - ráðstefna í HÍ 2004