Skip to main content

Sýningargerð, miðlun og sýningarstjórnun

Sýningargerð, miðlun og sýningarstjórnun

Hugvísindasvið

Sýningargerð, miðlun og sýningarstjórnun

MA – 120 einingar

Þverfaglegt meistaranám með það að markmiði að breikka og dýpka fræðilegan þekkingargrunn og faglega færni nemanda til að takast á við margvísleg miðlunarverkefni í fræðilegu samhengi.

Skipulag náms

X

List og samfélag í samtíma (LIS701F)

List hefur í sögulegu tilliti verið sá þáttur samfélagsins þar sem nýjungar og framsýni hefur verið í mestum metum. Þetta frumkvæði listar hefur þó ætíð byggt á sögulegum forsendum — þess sem á undan kemur. Í þessu samhengi eru listamenn samtímans stöðugt að endurnýja fyrri forsendur sínar. Á sama tíma eru listheimar samtímans í eðli sínu margbrotnir — þar á sér stað sífellt meiri skörun ólíkra miðla og áhrifa, þar sem listamenn vinna á grundvelli fræðilegra forsendna, félagslegra forsendna og með tilliti til stjórnmála og efnahagsmála. Menningarlegar aðstæður breytast einnig ört í samtíðinni, fyrir tilstilli tækniþróunar, byggðaþéttingar, heimsvæðingar og náttúruvár, auk óvissu á sviði stjórnmála. Þetta leiðir til þess að eðli listastarfsins tekur sífellt meiri breytingum. Vegna þessa er mikilvægt að leggja stöðugt nýjan grunn að túlkun listarinnar og virkni hennar í samfélaginu, þar sem nýjar hugmyndir og skilgreiningar, á við ‚mannöld‘ og ‚síð-mennsku‘, gagnast til aukins skilnings á stöðu listar í samfélagi manna. Í námskeiðinu eru listfræðilegar forsendur samtíðarinnar teknar til endurskoðunar og listvettvangurinn — sagan og samtíðin — kannaður með hliðsjón af samspili listar við ólíkar greinar: sagnfræði, heimspeki, bókmenntir, fjölmiðla- og kvikmyndafræði, mannfræði, stjórnmálafræði, landafræði, félagsfræði.

X

Ritstjórn og fræðileg skrif (ÍSL101F)

Þjálfun í ýmsum þáttum er varða ritun fræðilegs efnis og ritstjórn. Ólíkar gerðir fræðilegra ritsmíða skoðaðar og metnar. Þjálfun í því að gera athugasemdir við skipulag og framsetningu á fræðilegum texta og í öðrum þáttum ritstjórnar. Áhersla lögð á ritun fræðilegra greina, en einnig hugað að samningu smærri verka (ráðstefnuútdrátta, ritdóma) og stærri (M.A.-ritgerða, doktorsritgerða, bóka). Fjallað um rannsóknaráætlanir, frágang handrita og ritstuld. Tekin dæmi af textum um ýmis efni, einkum málfræðileg,  bókmenntaleg og sagnfræðileg. Stuðst við bókina Skrifaðu bæði skýrt og rétt (Höskuldur Þráinsson 2015).

Námskeiðið er opið nemendum á mörgum námsleiðum í MA-námi á Hugvísindasviði skv. reglum viðkomandi greina. Nemendur á MA-stigi í íslenskum bókmenntum, íslenskri málfræði, íslenskum fræðum og íslenskukennslu geta fengið námskeiðið metið sem hluta af þeirri skyldu sem þeir þurfa að uppfylla í meistarastigsnámskeiðum í íslenskum bókmenntum eða íslenskri málfræði. Nemendur í MA-námi í íslenskukennslu geta þó ekki haft þetta námskeið sem eina málfræði- eða bókmenntanámskeiðið á MA-ferlinum.

X

Myndlist og saga: Listheimar í mótun (LIS709F)

Á undanförnum áratugum hefur fræðilegt samhengi listsögurannsókna verið tekið til rækilegrar endurskoðunar. Nýjar kenningar, ný gögn og stafræn tækni hafa leitt af sér að möguleikar til rannsókna hafa tekið miklum breytingum. Gagnrýnar hugmyndir um inngildingu, sjálfbærni, þjóðfélagsmótun og umhverfi hafa leitt til nýrra viðmiða. Í námskeiðinu verða þessar nýju listsöulegu forsendur teknar til umræðu með lestri og úrvinnslu nýjustu rannsókna á sviði lista- og menningarsögu. Hugmyndir um heimslistina og tengingar hennar við menningu, stjórnmál og vísindi verða skoðaðar ítarlega, álitamál rædd og krufin á virkan hátt í ræðu og riti.

X

Listgagnrýni og sýningarstjórn (LIS805F)

Í námskeiðinu er lagður grundvöllur að virku starfi sýningarstjóra fyrir hagnýt störf á myndlistar- og safnavettvangi. Unnið er á þverfaglegan og gagnrýnin hátt með hugtök og kenningar sem snúa að starfi sýningarstjóra á vettvangi samtímalistar. Í námskeiðinu vinna nemendur í teymum og setja upp sýningu í samstarfi við myndlistarnema eða myndlistarmenn. Nemendur koma til með að beita þekkingu og aðferðum í verki, vinna að undirbúningi, hönnun, textaskrifum og gerð kynningarefnis í tengslum við sýningarhaldið. Námskeiðið er að hluta til unnið í samvinnu við meistaranám í myndlist í LHÍ, auk þess sem nemendur eiga þess kost að eiga í samstarfi við Listasafn Háskóla Íslands og önnur viðurkennd listasöfn.

X

Myndlist og saga: Listheimar í mótun (LIS709F)

Á undanförnum áratugum hefur fræðilegt samhengi listsögurannsókna verið tekið til rækilegrar endurskoðunar. Nýjar kenningar, ný gögn og stafræn tækni hafa leitt af sér að möguleikar til rannsókna hafa tekið miklum breytingum. Gagnrýnar hugmyndir um inngildingu, sjálfbærni, þjóðfélagsmótun og umhverfi hafa leitt til nýrra viðmiða. Í námskeiðinu verða þessar nýju listsöulegu forsendur teknar til umræðu með lestri og úrvinnslu nýjustu rannsókna á sviði lista- og menningarsögu. Hugmyndir um heimslistina og tengingar hennar við menningu, stjórnmál og vísindi verða skoðaðar ítarlega, álitamál rædd og krufin á virkan hátt í ræðu og riti.

X

Lokaverkefni (LIS441L)

Meistararitgerð

X

Lokaverkefni (LIS441L)

Meistararitgerð

X

Starfsnám I (LIS601F)

Markmið einstaklingsverkefnis er að vinna að rannsóknarverkefni eða miðlun í safni , sýningarsal, eða annarri liststofnun. Verkefnið má vinna innanlands eða erlendis, þá hugsanlega í gegnum skiptinám Erasmus +.

Þá er einnig hægt að vinna rannsóknarverkefni í tengslum við safneign Listasafns Háskóla Íslands sem hefur þá sérstöðu að deila sýningarrými sínu með stúdentum, kennurum og öðru starfsfólki skólans.

X

Um dulspeki og dulhyggju í nútímalist (LIS512M)

Námskeiðið fjallar um fræðilega og listræna orðræðu samtímans sem dregur fram hlutverk dulspeki, andlegra strauma og dulhyggju í sögu nútímalistar og menningar. Í námskeiðinu er sjónum beint að hugmyndum, trúarkerfum, iðkunum og táknum sem lengi voru jaðarsett eða afskrifuð sem „óskynsamlegir“ heimskulegir draumórar  og afglöp, en hafa í raun gegnt lykilhlutverki í mótun módernisma og nútímamenningar frá 19. öld til okkar daga. Markmið námskeiðsins er að veita inngang að helstu dulspekihefðum og iðkunum, svo sem guðspeki, galdri, alkemíu, andatrú, nýaldaraspeki og dul-menningu. Sérstök áhersla er lögð á að skoða hvernig listin setur ekki eingöngu fram og tjáir dulspekileg hugtök heldur er virkjuð sem vettvangur helgiathafna og reynslubundin iðkun dulhyggju. Námskeiðið byggir á þverfaglegri nálgun þar sem lykilverk, listahreyfingar og listamenn eru skoðuð í víðu menningarsögulegu samhengi. Jafnframt er tekið tillit til annarra listforma, svo sem dans, tónlistar og kvikmynda.

X

Starfsnám II (LIS708F)

Markmið einstaklingsverkefnis er að vinna að rannsóknarverkefni eða miðlun í safni , sýningarsal, eða annarri liststofnun. Verkefnið má vinna innanlands eða erlendis, þá hugsanlega í gegnum skiptinám Erasmus +.

Þá er einnig hægt að vinna rannsóknarverkefni í tengslum við safneign Listasafns Háskóla Íslands sem hefur þá sérstöðu að deila sýningarrými sínu með stúdentum, kennurum og öðru starfsfólki skólans.

X

Kalt stríð: Menning, listir og bókmenntir (LIS710F)

Í námskeiðinu verður rýnt í tengsl pólitískrar og fagurfræðilegrar orðræðu á Íslandi á tímum kalda menningarstríðsins sem stórveldin tvö, Bandaríkin og Sovétríkin, háðu um hugi og hjörtu heimsbyggðarinnar á síðari hluta 20. aldarinnar. Byggt verður á þverfaglegum rannsóknum á kalda stríðinu með áherslu á samspil hnattrænna (e. global) áhrifa og staðbundina aðstæðna. Þessi heimanlega (e. glocal) nálgun gerir það mögulegt að skoða íslenska gerendur (e. agents) í kalda stríðinu ekki aðeins sem fulltrúa heimsveldanna tveggja, Bandaríkjanna og Sovétríkjanna, heldur líka á forsendum eigin menningar og hagsmuna. Beitt verður blönduðum aðferðum og kenningum félagsvísinda, list-, bókmennta- og sagnfræði. Lögð verður sérstök áhersla á greiningu bókmenntatexta og listaverka en einnig verður gaumur gefin að þátttöku íslenskra mennta- og listamanna í alþjóðlegu menningarstarfi. Nemendur kynnast því hvernig fjallað hefur verið um kalda stríðið á síðustu árum bæði á fræðilegum vettvangi en líka í miðlun til almennings gegnum sýningar, hlaðvörp og teiknimyndasögur.

X

Gjörningar, náttúra og umhverfi: Skilgreining og áhrif gjörninga á mannöld (LIS509M)

Í námskeiðinu verður fjallað um gjörningalistformið í ljósi loftslagsbreytinga og umhverfisvár samtímans. Hvaða áhrif geta listrænir gjörningar haft í þessu samhengi? Hvernig hafa listamenn velt fyrir sér og brugðist við afleiðingum mannlegra framkvæmda á jörðina og vistkerfi hennar? Fjallað verður um samfléttun gjörningalistar og umhverfislistar á 7. og 8. áratugnum og um tengsl myndlistar við pólitískar umhverfishreyfingar. Sjónum verður beint að því hvernig samtímalistamenn um allan heim hafa notað gjörningaformið til þess að varpa ljósi á fjölþætt tengsl mannverunnar við umhverfið, mörk manngerðs og náttúrulegs umhverfis og áhrif hnattrænna loftslagsbreytinga á samfélög manna, dýra og lífríki jarðar. Fjallað verður um skörun umhverfishreyfingarinnar við femínisma og baráttu frumbyggja víða um heim. Skilgreining gjörninga verður tekin til skoðunar og fjallað um lífræna ferla og ómennska gjörninga í myndlist í ljósi róttækra hreyfinga í heimspeki samtímans.

X

Netverk bókverka (LIS604M)

Í námskeiðinu er fjallað um bókverk íslenskra og erlendra myndlistarmanna frá sjöunda áratugi 20. aldar til samtímans ásamt því að forsaga þeirra er rakin. Fyrir um sextíu árum varð til hreyfing myndlistamanna sem unnu verk sín í bókarformi, sendu bækurnar sín á milli og komu sér þannig upp samstarfsneti sem fóstraði nýja og róttæka sýn á myndlist, samfélag og menningu. Á Íslandi voru listamenn sem snemma tileinkuðu sér þetta nýja tjáningarform og lögðu grunninn að sterkri bókverkahefð sem síðari kynslóðir listamanna hafa nýtt sér til að koma hugmyndum sínum á framfæri og rækta tengsl við aðra framsækna listamenn um allan heim.
Í námskeiðinu er þessi sterki þráður í íslenskri samtímalist rakinn og reynt að varpar ljósi á hlutverk bókverka í að rjúfa einangrun íslenskra framúrstefnulistamanna og gera þá að virkum þátttakendum í alþjóðlegum listheimi. Einnig er áhersla lögð á að greina sérstöðu bókverka og þróun þeirra í samhengi við aðra miðla auk skörunar þeirra við aðrar listgreinar svo sem skáldskap, tónlist, sviðslistir, o.fl. Einstök skynhrif er bókverk kalla fram verða greind og spurningum varpað fram um tengsl texta, forma, mynda, lita og hljóða í bókverkum. Unnið verður með fjölda ólíkra bókverka, orð listamanna um verk sín jafnt sem fræðilegt samhengi þeirra. Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð nemenda, listsköpun og nýjar rannsóknir á bókverkum.

X

Tilraunakvikmyndir og myndlist (LIS508M)

Tilraunakvikmyndir og kenningalegt samhengi þeirra og myndlistar er viðfangsefni námskeiðsins. Skoðuð eru ólík tímabil innan sögu tilraunakvikmynda og þau viðbrögð sem þau kölluðu fram greind, meðal annars í samhengi módernisma, húmanisma, strúktúralismi, póstmódernisma, og and-fagurfærði. Þessi tímabil og kenningalegt samhengi þeirra eru skoðuð út frá fræðimönnum á borð við Kant, Nietzche, Marx, Lacan, Bazin, Baudrillard, McLuhan og Jameson til að móta sjónarhorn til að túlka framúrstefnu kvikmyndir og hreyfingar myndlistar allt frá upphafi expressionisma til samtíma. Í námskeiðinu er einnig lögð áhersla á að greina hlutverk einstaklingsins í umhverfi fjölmiðla og aðþreyingar, meðal annars með því að taka til skoðunar verk ólíkra listamanna sem hægt er að staðsetja innan þessa samhengis. Áhersla er lögð á að horfa á og greina verk höfunda sem hafa unnið með þetta samhengi innan hugmynda sinna og listsköpunar. Námsmat: Skrifleg og munnleg verkefni og hópverkefni.

X

Nýsköpun og sprotaþróun (HMM123F)

Í námskeiðinu vinna nemendur að þróun á sprotaverkefnum frá hugmynd til afurðar. Lögð er áhersla á hagnýta vinnu við raunveruleg viðfangsefni þar sem nemendur beita notendamiðuðum aðferðum, vinna með viðskiptalíkön og gera fjölbreyttar greiningar og áætlanir.

Í fyrri hluta námskeiðsins verður hönnunarhugsun kynnt til sögunnar, auk þess sem grunnatriði verkefnastjórnunar verða kynnt. Seinni hluti námskeiðsins verður samkenndur með iðnaðarverkefræði og viðskiptafræði.

Námskeiðið byggir mikið á vinnustofum og samvinnu milli nemenda með ólíkan faglegan bakgrunn. Áhersla er á gagnrýna greiningu á tækifærum til nýsköpunar og frumkvöðlastarfs, skapandi lausnaleit og þróun hugmynda út frá þörfum notenda. Nemendur öðlast hæfni í aðferðum við að prófa og miðla hugmyndum og lausnum og kynnast hagnýtum og samfélagslegum áhrifum nýsköpunar á breiðum grunni. Námskeiðið hentar nemendum sem vilja efla frumkvöðlahugsun og læra að beita aðferðum nýsköpunar, hvort sem er innan stofnana, starfandi fyrirtækja eða sem sjálfstæðir frumkvöðlar.

X

Miðlunarleiðir I, heimildamyndir, textagerð, myndanotkun (HMM122F)

Í námskeiðunum Miðlunarleiðir I og Miðlunarleiðir II eru kynnt grunnatriði aðferða við miðlun menningarefnis í hug- og félagsvísindum. Miðlunarleiðir I eru á haustönn en Miðlunarleiðir II eru á vorönn. 

Í Miðlunarleiðum I verður unnið með:

  1. Texta og myndir í fyrri hluta annarinnar. Nemendur munu fá þjálfun við greinaskrif og orðræðugreiningu annars vegar og myndanotkun og myndgreiningu hins vegar.
  2. Stuttmyndagerð í síðari hluta annarinnar. Þar vinna nemendur að gerð  stuttmynda. Í því felst grunnþjálfun í handritagerð, tökum og klippi og nemendur vinna í hópum að stuttmynd í samræmi við tiltekið þema. Hvor efnisþáttur um sig vegur 50% í námskeiðinu.

Engin próf eru í námskeiðinu. Þess í stað vinna nemendur verkefni, einstaklings- og hópverkefni. Þau eru eftirfarandi:

  1. Greiningar á textum og myndum
  2. Grein með mynd um tiltekið þema til opinberrar birtingar, um 800 orð.
  3. Hópverkefni þar sem nemendur vinna að stuttmynd sem er sýnd við lok námskeiðsins. Áhersla er lögð á hópavinnu og hagnýt verkefni.

Námskeiðið er ekki kennt í fjarnámi.

X

Miðlun í hljóðvarpi og hlaðvarpi (HMM235F)

Námskeiðið er haldið í samstarfi við RÚV - Rás 1. Fjallað er um framsetningu efnis í útvarpi og hlaðvarpi. Könnuð eru ólík dæmi um dagskrárgerð. Hugað er að miðlunarmöguleikum hljóðefnis í fjölmiðlaumhverfi samtímans og gerð grein fyrir eðli ólíkra miðlunarleiða. Fjallað verður um hugmyndavinnu, viðtalstækni, upptökutækni, uppbyggingu og samsetningu hljóðvarps/hlaðvarpsefnis með áherslu á  sjálfbærni og sjálfstæð vinnubrögð. Nemendur vinna verkefni tengd útvarpsþáttagerð. 

X

Menningarfræði og þjóðfélagsrýni (MFR701F)

Í námskeiðinu er litið yfir sögu menningarfræðinnar og sjónum beint að gildi hennar sem róttæks forms þjóðfélagsrýni. Lesnir verða textar lykilhöfunda 19. öld og til samtímans. Í forgrunni er sjálft menningarhugtakið og spurningin um gildi þess fyrir gagnrýna umræðu um þjóðfélag, sögu og samtíma. Fjallað er um samspil gagnrýni og fræða og hvernig menningarfræðin setur slíkt samspil í forgrunn. Þetta kemur fram jafnt í textum eldri og yngri höfunda og skapar togstreitu sem hefur á undanförnum áratugum verið frjór jarðvegur allra hugvísinda og einkennt samhengi þeirra við menningarpólitíska hugsun. Til grundvallar eru lögð hugtök á borð við hugmyndafræði, vald, forræði, kyngervi og orðræða.

X

Grundvallaratriði vefmiðlunar ‐ Starf vefstjórans og vefritstjórn (RÚT704F)

Starf vefstjórans hefur tekið miklum breytingum með stöðugri tækniþróun og áherslu á stafrænar lausnir. Leitast verður við að veita nemendum góða innsýn í helstu þætti í starfi vefstjórans. Rýnt verður í skrif fræðimanna á sviði vefmiðlunar, nemendur kynnast nauðsynlegum tækjum og tólum og við fáum til okkar góða gesti sem hafa fjölbreytta starfsreynslu sem vefstjórar, vefritstjórar og á sviði stafrænnar miðlunar.

Starf vefritstjóra er iðulega samofið almennri vefstjórn. Nemendur fá góða innsýn í ritstjórn vefja og skrifum fyrir stafræna miðla. Fjallað verður um helstu þætti sem vefstjóri / vefritstjóri þarf að hafa vald á, svo sem upplýsingaarkitektúr, skrifum fyrir vef, framsetningu myndefnis, grundvallaratriði í vefhönnun, aðgengismál, nytsemi, öryggismál, vefmælingar, vefumsjónarkerfi, grunntækni vefviðmótsins, helstu hugtök og skilgreiningar í tækni vefsins og netsins.

Nemendur setja upp eigin vef og nota til þess vefumsjónarkerfi að eigin vali, t.d WordPress eða Wix, sem bæði eru til í ókeypis útgáfum, og er hluta verkefna skilað þar. Þannig öðlast nemendur þjálfun í að setja upp einfaldan vef og byggja upp leiðakerfi. Athygli er sérstaklega vakin á því að í námskeiðinu er ekki kennsla á vefumsjónarkerfi. Þeim sem ekki hafa reynslu af notkun þeirra fyrir er bent á að á YouTube má finna fjölda myndbanda þar sem hægt er að læra á kerfin, allt frá grunnatriðum og upp í mun flóknari þætti en ætlast er til að í þessu námskeiði.

X

Kenningar í hugvísindum (FOR709F)

Námskeiðinu er ætlað að breikka og dýpka þekkingu nemenda á kenningum í hugvísindum og að veita þeim innsýn í ólík kennileg sjónarmið og aðferðir sem efst eru á baugi í fræðunum. Í námskeiðinu verða kynntar og ræddar valdar kenningar sem hafa sett mark sitt á fræðilega umræðu í hugvísindum síðustu áratugi, samhliða því sem nemendum verður kennt að beita þeim á eigin rannsóknir.

X

Menningarfræði og þjóðfélagsrýni (MFR701F)

Í námskeiðinu er litið yfir sögu menningarfræðinnar og sjónum beint að gildi hennar sem róttæks forms þjóðfélagsrýni. Lesnir verða textar lykilhöfunda 19. öld og til samtímans. Í forgrunni er sjálft menningarhugtakið og spurningin um gildi þess fyrir gagnrýna umræðu um þjóðfélag, sögu og samtíma. Fjallað er um samspil gagnrýni og fræða og hvernig menningarfræðin setur slíkt samspil í forgrunn. Þetta kemur fram jafnt í textum eldri og yngri höfunda og skapar togstreitu sem hefur á undanförnum áratugum verið frjór jarðvegur allra hugvísinda og einkennt samhengi þeirra við menningarpólitíska hugsun. Til grundvallar eru lögð hugtök á borð við hugmyndafræði, vald, forræði, kyngervi og orðræða.

X

Söfn sem námsvettvangur (SAF016F)

Einn megintilgangur safna á Íslandi er að skila menningar- og náttúruarfi landsins til komandi kynslóða og stuðla að aukinni þekkingu á þessari arfleifð og skilningi á tengslum hennar við umheiminn. Ætlast er til þess (samkvæmt safnalögum) að söfn reyni að „auka lífsgæði manna“ með því að efla skilning á þróun og stöðu menningar, lista náttúru eða vísinda. Söfn og safnfræðsla geta því haft áhrif á samfélag, hópa og einstaklinga. Safnafræði getur komið hér að liði og er megin viðfangsefni námskeiðsins. Kynntar verða fræðilegar kenningar sem hafa að markmiði að stuðla að fjölbreyttri og áhrifamikilli fræðslu tengdri fornleifum, list, náttúruvísindum, menningarlegri arfleifð og öðrum viðfangsefnum safna. Hugað verður að fjölbreyttum markhópum safnfræðslu, hlutverki safngesta innan safna, rými, textagerð, margmiðlun, gagnvirkni og fleira.

Þetta er fjarkennslunámskeið sem skiptist í þrjár lotur. Í hverri lotu eru ör-fyrirlestrar frá kennara með hugleiðingum um námsefnið, gesta-fyrirlestrar (stafrænir) og aukaefni. Þrjár stað- og/eða ZOOM-lotur eru yfir önnina, þar sem nemendur fá fyrirlestra frá starfsmönnum safna og vinna að fræðsluverkefni í samstarfi við safn í Reykjavík. Verkefnið verður þróað út frá fræðilegum áhuga nemenda undir handleiðslu kennara og með aðstoð starfsmanna safnsins.

X

Menningararfur (ÞJÓ506M)

Hvað er menningararfur og hvaða hlutverki þjónar hann? Af hverju er hann í stöðugri útrýmingarhættu? Hvernig tengir hann saman fortíð og samtíð? Hvað á hann skylt við þjóðríkið? Söguvitund? Hnattvæðingu? Kapítalisma? Stjórnmál? Í námskeiðinu verður leitað svara við þessum spurningum, kynntar nýlegar rannsóknir þjóðfræðinga, mannfræðinga, listfræðinga, félagsfræðinga, safnafræðinga, sagnfræðinga og fornleifafræðinga á menningararfi og tekinn púlsinn á því sem er að gerast á þessu ört vaxandi sviði. 

Kennslan fer fram í fyrirlestrum og umræðum.

X

Starfsnám I (LIS601F)

Markmið einstaklingsverkefnis er að vinna að rannsóknarverkefni eða miðlun í safni , sýningarsal, eða annarri liststofnun. Verkefnið má vinna innanlands eða erlendis, þá hugsanlega í gegnum skiptinám Erasmus +.

Þá er einnig hægt að vinna rannsóknarverkefni í tengslum við safneign Listasafns Háskóla Íslands sem hefur þá sérstöðu að deila sýningarrými sínu með stúdentum, kennurum og öðru starfsfólki skólans.

X

Listhluturinn: Ævi og efni (LIS808M)

Þverfaglegum rannsóknum á efnismenningu (e. Material culture) hefur á síðustu áratugum vaxið fiskur um hrygg. Þrátt fyrir að efnisleiki, efnismenning, söfnun og eigendasaga hafi á vissan hátt alltaf verið hluti af rannsóknarsviði listfræðinga hefur listfræðin átt takmarkaðan hlut í umræðu innan efnismenningarfræða (e. Material culture studies) um tengsl manna við hluti. Í þessum áfanga gefst nemendum dýrmætt færi á beina ítarlegum sjónum að listgripum og „ævi“ þeirra innan og utan stofnana: sköpun þeirra, notkun, skiptum, sýningu, varðveislu, flokkun og skilgreiningu, sem og þeim gildum sem þeim hefur verið gefið og hugmyndum sem tengdar hafa verið við þá. Í hverri viku rýna nemendur í einn afmarkaðan hlut og fá innsýn í beitingu ólíkra aðferða við greiningu og túlkun listgripa, með myndgreiningu, greiningu á efni og gerð hluta, flokkun þeirra í skráningarkerfum safna og greiningu á eigenda- og sýningarsögu. Nemendur kynnast jafnframt kenningum efnismenningarfræða og skörun þeirra við viðfangsefni og kenningar listfræðinnar, svo sem stofnanagagnrýni (e. Institutional critique) og eigendasögu (e. Provenance). Námskeiðið er unnið í samstarfi við söfn á höfuðborgarsvæðinu og hentar nemendum í listfræði, myndlist, sagnfræði, fornleifafræði, þjóðfræði og safnafræði.

X

Að æfa framtíðina: Vikið frá nýlenduarfinum (LIS612M)

Þetta námskeið skoðar hvernig samtímalistamenn bregðast við og endurskapa framtíðina sem er mótuð af hvítri yfirburðahyggju, nýlenduarfi og kapítalísku valdakerfi. Í stað þess að nálgast framtíðina sem eitthvað óhlutbundið eða byggt á tæknilegum framförum er litið á hana sem vettvang átaka, rými þar sem ríkjandi valdakerfi halda velli, en jafnframt þar sem aðrir ímynda sér, æfa og hafna. Með innblæstri frá Co-futurisma, Radical Futurisma og afnýlenduhugsun takast nemendur á við listræna starfshætti sem brjóta upp línulegan tímaskilning og rányrkjuhugsun. Þessar nálganir fela meðal annars í sér getgátufagurfræði (e. speculative aesthetics), nálgun vísindaskáldskapar og andskjalasöfn (e. counter-archives). Námskeiðið lítur einnig á framtíðarsköpun sem heilandi og sameiginlega athöfn, æfingu í umhyggju, andspyrnu og tengslamyndun. Við spyrjum spurninga á borð við: Hvaða framtíð er verið að hanna fyrir okkur? Hvaða fagurfræðilegu og pólitísku aðgerðir geta hjálpað okkur að víkja frá þessum forskrifuðu frásögnum?  Í gegnum lesefni, áhorf á vídeóverk og vinnu í stúdíói þróa nemendur eigin verkefni, byggð á rannsóknum eða verkferlum. Lögð verður áhersla á staðbundna þekkingu, að aflæra og skapandi tilraunastarfsemi.    Nemendur takast á við kenningar um nýlenduarf, tímaskynjun og framtíðarsýn og setja eigin sjónarhorn í samhengi við staðbundnar og alþjóðlegar aðstæður. Með listrænni rannsókn og getgátu listsköpun (e. speculative practice) kanna nemendur nýjar leiðir til að móta og endurskilgreina valdakerfi í gegnum fagurfræðilega nálgun. Nemendur þróa og miðla eigin listrænni afstöðu með gagnrýninni meðvitund, víðsýni og samfélagslegri ábyrgð.   

X

Starfsnám II (LIS708F)

Markmið einstaklingsverkefnis er að vinna að rannsóknarverkefni eða miðlun í safni , sýningarsal, eða annarri liststofnun. Verkefnið má vinna innanlands eða erlendis, þá hugsanlega í gegnum skiptinám Erasmus +.

Þá er einnig hægt að vinna rannsóknarverkefni í tengslum við safneign Listasafns Háskóla Íslands sem hefur þá sérstöðu að deila sýningarrými sínu með stúdentum, kennurum og öðru starfsfólki skólans.

X

Kynusli í myndlist (LIS429M)

Í námskeiðinu eru myndlistarverk skoðuð í kynlegu ljósi og fjallað um kenningalegan grundvöll kynjafræða og þverfaglegt inntak þeirra. Leitast er við að greina hvernig hugmyndir um kyngervi hafa áhrif á listsköpun jafnt sem umræðu og skrif um myndlist. Birtingarform og merking kyngervis í tungumáli, samfélagi og menningu eru einnig greind með áherslu á staðalímyndir og/eða uppbrot þeirra í afstöðu og verkum listamanna. Stuðst er við hugmyndir femínista og hinsegin fræða til að afhjúpa áhrif kyngervis í verkum sumra listamanna sem hliðra staðalímyndum kven- og karlleika og skapa usla í ríkjandi orðræðu og kynjakerfi Vesturlanda. Einnig er fjallað um listheiminn út frá kynjafræðilegu sjónarhorni og kynntar rannsóknir á margbreytilegum birtingarmyndum kynjamisréttis í samtímanum.

X

Inngangur að sýningarstjórnun (SAF019F)

Fjallað verður um helstu atriði sýningargerðar og störf sýningarhöfundar, sýningarstjóra og sýningarhönnuðar. Mismunandi aðferðir við sýningastjórnun verða skoðaðar með gagnrýnum hætti og hugmyndafræðilegur grunnur sýninga kannaður. Áhersla verður lögð á frásagnarafbrigði sýninga, handritsgerð og miðlunarleiðir. Einnig verður lögð áhersla á að skoða og greina sýningar listasafna, menningarminjasafna og náttúruminjasafna og kanna með gagnrýnu hugarfari hvernig ólíkar leiðir miðla upplýsingum og upplifunum. Hugað verður að innlendum og erlendum dæmum.

X

Menningarleg og stafræn nýsköpun (HMM241F)

Í námskeiðinu er fjallað um fjölbreyttar birtingarmyndir menningartengdrar nýsköpunar innan menningar- og miðlunarsviðs, með áherslu á áhrif og möguleika stafrænnar tækni. Lögð er áhersla á stjórnun og starfsemi skipulagsheilda sem starfa á sviði menningar og skapandi greina, og hvernig nýsköpun getur stutt við menningarlegt gildi, sjálfbærni og þróun nýrra miðlunarleiða.

Kenndar verða kenningar og aðferðir tengdar menningarstjórnun, skapandi hugsun og frumkvöðlastarfi í menningarlegu samhengi. Fjallað verður um tengsl menningar, hagkerfis og tækni, og hvernig menningartengd nýsköpun getur stuðlað að aukinni þátttöku, nýjum viðskiptamódelum og nýjum formum menningarlegrar miðlunar.

X

Kenningar í kynjafræði (KYN211F)

Í námskeiðinu er fjallað um heimspekilegan og kenningalegan grundvöll kynjafræða og gagnrýnið og þverfræðilegt inntak þeirra. Fjallað er um birtingarform og merkingu kyns (e. sex) og kyngervis (e. gender) í tungumáli og menningu, sögu, samfélagi og vísindum. Sjónarmið fræðanna eru kynnt og tengsl þeirra við aðferðafræði. Þá eru nemendur þjálfaðir í að beita á sjálfstæðan og gagnrýninn hátt fræðilegum hugtökum og aðferðum.

X

Menning og andóf (MFR703M)

Í námskeiðinu er fjallað um samspil pólitískrar róttækni, menningar, hefðar og valds. Sérstaklega er hugað að birtingarmyndum andófs í samtímanum, orðræðu lýðræðis og menningarlegs mismunar og viðbrögðum við gagnrýni og andófi innan hefðar nútímastjórnmála. Fjallað er um þátt menntamanna og rithöfunda og vægi listrænnar tjáningar og hönnunar við umbreytingu félagslegs og menningarlegs umhvefis. Þá er fjölmiðlaorðræða skoðuð og greind og fjallað um hin ólíku og oft andstæðu markmið sem sjá má í starfsemi stofnana samfélagsins. Valdir eru nokkrir átakapunktar menningar- og samfélagsorðræðu sem draga fram grundvallartogstreitu frjálslyndra lýðræðissamfélaga, svo sem spurningar um visku eða fávisku almennings, viðbrögð við loftslagsbreytingum, óöfnuð og ofsafátækt. Loks er fjallað um spillingu og vald, félagslega og menningarlega tjáningu, möguleika og takmarkanir tjáningarfrelsis, notkun og misnotkun upplýsinga, leynd, fals og falsfréttir.

X

Ritstjórn og hönnun prentgripa (RÚT803F)

Námskeiðið felst í að skoða samstarf og verkaskiptingu milli ritstjóra og hönnuða við gerð og útgáfu prentgripa. Veitt verður innsýn í undirstöðuþætti leturfræði, grafískrar hönnunar og undirbúning fyrir prentun. Einnig verða helstu verkfæri hönnuða skoðuð með tilliti til ólíkra útgáfuverkefna. Farið verður yfir helstu kenningar um áhrif grafískrar hönnunar og leturfræði á læsileika og skilning á inntaki. Rætt verður um gæði, notagildi, fagurfræði og hagkvæmnisjónarmið í grafískri hönnun.

Nemendur flytja erindi og skila skriflegri greiningu á hönnunargrip/um að eigin vali og eru einnig hvattir til að taka virkan þátt í umræðum í tímum. Lokaverkefni námskeiðs felst í að skapa eigið útgáfuverkefni og miðla hugmyndum um ritstjórn þess í máli og myndum.

X

Miðlunarleiðir II: Munnleg framsetning, sýningar, stafræn miðlun (HMM242F)

Í Miðlunarleiðum II á vorönn er unnið með eftirfarandi miðlunarleiðir: a) munnleg framsetning og b) sýningar á menningarsögulegu efni. Stafræn miðlun verður fléttuð inn í báða þætti. 

Nemendur fara yfir grunnatriði í munnlegri framsetningu og æfa sig í minni og stærri hópum. Einnig verður farið yfir grunnatriði varðandi skipulagingu á ráðstefnum og málþingum og stjórnun þeirra. Stafræn miðlun verður fléttuð inn í kynningarhluta þessa viðfangsefnis. Við lok þess þáttar er haldin ráðstefna þar sem allir nemendur kynna verkefni sín. Að honum loknum tekur við þáttur um sýningar með tengingu við stafræna miðlun. Fjallað verður um grunnatriði sýninga og ólíkar leiðir við framsetningu mynda og texta og hvaða reglur gilda um framsetningu texta á netinu. Nemendur vinna við hagnýt verkefni í þessu samhengi.  Samhliða verður farið yfir grunnatriði í stafrænni miðlun, hverjar eru helstu miðlunarleiðir, kostir og gallar. 

Engin próf eru í námskeiðinu. Þess í stað vinna nemendur verkefni, einstaklings- og hópverkefni. Þau eru eftirfarandi:

  1. fyrirlestur á ráðstefnu og önnur verkefni í því samhengi
  2. Sýningagreining og hagnýtt verkefni í tengslum við sýningar á vegum Borgarsögusafns
  3. Stafræn miðlun verður fléttuð inn í báða þætti. Áhersla er lögð á sameiginleg þemu og hópavinnu í námskeiðinu.

Námskeiðið er ekki kennt í fjarnámi.

X

Skapandi heimildamyndir (HMM220F)

Fjallað verður um helstu tegundir heimildamynda, aðferðir, þróun þeirra og tilgang.

Nemendur læra að skrifa handrit að stuttri heimildamynd og að hugsa allt ferli heimildamyndagerðar, frá grunnhugmynd að fullbúinni mynd, ástunda fagleg vinnubrögð og læra að skipuleggja tökur.

Nemendur ættu einnig að ná tökum á grunnatriðum í kvikmyndatöku og klippingu. Í því samhengi verður unnið eitt verkefni á síma til að ná tökum á tækniatriðum í klippi. Allir nemendur þurfa að skila að minnsta kosti einni fullbúinni stuttri heimildamynd, handriti og æfingaverkefni í klippi. Nemendur ræða nálgun og efnistök verkefna sinna við samnemendur og kennara.

Í námskeiðinu verða sýndar heimildamyndir, bæði brot úr þeim og í fullri lengd, þar sem rætt verður um hugmyndirnar bak við myndirnar, listrænar ákvarðanir, tilgang og siðfræði heimildamynda. Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð.

Tökur fara fram í mars og þurfa að vera búnar fyrir 30. mars, en þá hitta nemendur kennara í klippiherberginu í Odda.

Ekki er ætlast til að nemendur kaupi neinar bækur fyrir þetta námskeið en nauðsynlegt er að þeir hafi sjálfir flakkara til að geyma efnið sitt á og SD kort í myndavélar fyrir eigin upptökur. Einnig er mælt með að nemendur séu með góð heyrnatól.

Námskeiðið er kennt í lotum. Nemendur vinna að heimildamynd alla önnina og í lok annar verður frumsýning í Bíó Paradís.

Námskeiðið er ekki kennt í fjarnámi.

X

Miðlun og menning (HMM240F)

Í námskeiðinu er menningarhugtakið teknar til gagnrýninnar skoðunar. Kenningar og skilgreiningar eru reifaðar samtímis því sem hlutverk, skilyrði og áhrif menningar í samtímanum eru vegin og metin. Markmiðið er að skapa samræðu fræðilegrar umræðu um menningararf, menningarstefnu og menningarlega sjálfbærni við praktísk úrlausnarefni sem tengjast miðlun menningar. Þannig er hugað að samspili menningarlífs við félagslegar, pólitískar og hagrænar aðstæður í sögu og samtíð og kannað hvernig þessir þættir bæði skilyrða og gera mögulega menningarmiðlun í samtímanum. Skoðað er hvernig menningararfur, hefðir, félagslegt minni, hugmyndir um upprunaleika og sjálfsmynd hafa áhrif á mótun og endursköpun menningar og hvernig nota má hugtök eins og „menningarlegt auðmagn“, „menningarlegt forræði“ og „orðræða um menningararf“ til að greina og skilja birtingarmyndir menningar. 

Námskeiðið er ekki kennt í fjarnámi.

X

Gagnaöflun og tölfræðiúrvinnsla í hugvísindum og máltækni  (ÍSL612M)

Á undanförnum árum hefur vægi gagnasöfnunar og tölfræðiúrvinnslu aukist í hugvísindum. Þetta kemur skýrt fram í undirgreinum á borð við sálfræðileg málvísindi (e. psycholinguistics), hugræna bókmenntafræði (e. cognitive literary studies) og tilraunaheimspeki (e. experimental philosophy). Þessi aukna áhersla á megindlega aðferðafræði í hugvísindum á sér stað á sama tíma og réttmæti rótgróinna tölfræðiaðferða er dregið í efa í öðrum greinum og hertar kröfur eru um að hægt sé að endurtaka rannsóknir og nálgast gögn í opnum aðgangi um leið og persónuverndar er gætt. Í þessu námskeiði munu nemendur rýna í vægi megindlegra aðferða í sínum greinum og fá þjálfun í öflun og úrvinnslu gagna. Fjölbreyttar rannsóknaraðferðir verða til umfjöllunar, allt frá greiningu textasafna yfir í skoðanakannanir og tilraunir þar sem skynjun áreita (svo sem orða, texta eða myndbrota) er mæld. Einnig verður farið yfir grunnhugtök og aðferðir í tölfræði svo nemendur þekki muninn á lýsandi tölfræði og ályktunartölfræði, skilji tölfræðilega marktækni og kunni að lesa úr myndrænni framsetningu gagna í gröfum. Lögð er áhersla á að nemendur spreyti sig undir leiðsögn kennara og bæði safni gögnum og greini þau. Nemendur vinna verkefni innan eigin fræðigreinar en kanna einnig grundvöll fyrir þverfaglegu samstarfi. Öll verkefni verða unnin í opnum hugbúnaði á borð við R Studio en engin fyrri þekking á forritinu né tölfræði er nauðsynleg. Námskeiðið hentar öllum nemendum á Hugvísindasviði sem vilja safna megindlegum gögnum til að svara áhugaverðum spurningum og gæti þannig reynst vel sem undirbúningur fyrir BA- eða MA-verkefni.

X

Rannsóknir og heimildaleit í skjalasöfnum (SAG206M)

Nemendur læra og þjálfast í aðferðum skjalfræðilegra rannsókna, heimildaleit í skjalasöfnum og að meta heimildagildi skjala. Nemendur taka þátt í verklegum æfingum sem tengjast námsefni.

X

Þáttagerð. Vinnsla fræðilegs efnis fyrir útvarp (í samvinnu við RÚV) (BLF201M)

Markmiðið með námskeiðinu er að gefa nemendum tækifæri til að koma rannsóknum sínum og annarra á framfæri við hlustendur Ríkisútvarpsins, jafnframt því að rýna í samfélag og menningu á fræðilegum forsendum. Nemendum gefst um leið tækifæri til að kynnast útvarpinu sem miðli, fá reynslu af þáttagerð og kynnast verklagi reynds fjölmiðlafólks.

Á meðal þess sem rætt verður um á námskeiðinu er: Ríkisútvarpið sem miðill, útvarp sem farvegur fræða, gerð fléttuþátta fyrir útvarp, viðtöl við fræðimenn, hvernig nýta megi eigin sérfræðiþekkingu við dagskrárgerð og krafturinn sem býr í hinu ósagða.  Rætt verður um talmál og tónlist í safni Ríkisútvarpsins. Lögð verður áhersla á hvernig tækni hefur þróast varðandi varðveislu og afspilun og hvernig hægt er að flétta eldri upptökur inn í nýja dagskrá.

Auk þessa fræðast nemendur um handritsgerð, viðtöl og vinnu í hljóðstofu. Þættir nemenda verða á dagskrá Ríkisútvarpsins á komandi vetri.

Öll fög eru skyldufög nemaVValfagBBundið val er háð skilyrðum ENámskeiðið er ekki kennt á misserinuNámsleiðin í Kennsluskrá

Hafðu samband

Þjónustuborð Hugvísindasviðs
s.525 4400 hug@hi.is.
Opið virka daga frá kl 10:00–12:00 og 13:00–15:00.

3. hæð Aðalbyggingar.
Sæmundargötu 2, 102 Reykjavík.

Nemendur á Hugvísindasviði geta einnig nýtt sér þjónustuborð á Háskólatorgi.

Fylgstu með Hugvísindasviði

 Instagram   Youtube 
 Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Hjálplegt efni

Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.