
Fjör og fræði á Ástarviku
Vísindaveisla í Bolungarvík laugardaginn 13. ágúst kl 12 – 16
Í tilefni aldarafmælis Háskóla Íslands árið 2011, ferðast Háskólalestin vítt og breitt um landið með fjölbreytta dagskrá. Laugardaginn 13.ágúst kemur lestin til Bolungarvíkur með sannkallaða vísindaveislu: fjör, fræði og viðburði.
Í Bolungarvík fer dagskrá Háskólalestarinnar fram kl 12 til 16 í Félagsheimilinu og Tónlistarskólanum. Þar verður fjölmargt að sjá, heyra og upplifa fyrir alla fjölskylduna og alla aldurshópa.
Í boði verður m.a. sýning félaga úr Sprengjugenginu landsfræga, stjörnutjald, eldorgel, kröftugar sýnitilraunir, japönsk og frönsk menning, furðuspeglar, tæki og tól sjúkraþjálfara, stjörnuskoðun, fornleifar, ástarsögur og rómantík af ýmsu tagi.
Vísindaveisla í Félagsheimilinu og Tónlistarskólanum:
• Sprengjugengið sýnir kl 12:30 og 14:30
• Stjörnutjaldið, sýningar á hálftíma fresti kl 12 til 16 í Tónlistarskólanum
• Eldorgel og sýnitilraunir
• Undraspeglar, snúningshjól og stjörnufræði
• Japönsk menning
• Stjörnufræði - Hvað er rómantískara en stjörnuhiminn?
• Tæki og tól, mælingar og pælingar
• Og ótal margt fleira að skoða, kanna og upplifa.
Stutt fræðsluerindi í fyrirlestrasal Félagsheimilis kl. 13 – 16.
13:00 "Af ástamálum Vestfirðinga á 15. öld. Hver getur elskað fertuga sjö
barna móður? Hvað með sextuga?": Lára Magnúsardóttir
13:30 "Oft við Amor hef ég átt í erjum": Sóley Bender
14:00 "Ástin sigrar (ekki, kannski, vonandi) alltaf. Um ástarsögur fyrr og nú": Dagný Kristjánsdóttir
14:30 "Ástir Rómverja til forna"; Ragnar Edvardsson, fornleifafræðingur
15:00 "Makaleit til sjós og lands": Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir
15:30 "Horfðu til himins – stjörnur og geimferðir". Sævar Helgi Bragason
Dagskrá Háskólalestar er öllum opin, aðgangur óke
Dagskrá Háskólalestar er öllum opin, aðgangur ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.
