Gengur skrýmslið laust? Líftækni í ljósi bókmennta
|
10/02/2012 - 12:30 10/02/2012 - 13:10 |
Askja
Stofa 130 |
Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur mun fjalla um tengsl líftækni og bókmennta í erindi föstudaginn 10. febrúar 2012 (kl. 12:30-13:10).
Erindið heitir Gengur skrýmslið laust? Líftækni í ljósi bókmennta og verður byggt á bókinni Sæborgin: Stefnumót líkama og tækni í ævintýri og veruleika (2011). Bókin fjallar um um sæborgir (svo sem gervimenni, vélmenni, klóna) í bókmenntum og myndmáli. Líftækni er skoðuð í ljósi bókmennta og kvikmynda og kannað hvernig orðræða skáldskapar mótar hugmyndir okkar um líftækni. Tengsl tækni og menningar eru könnuð og þá sérstaklega birtingarmyndir þeirra í skáldskap. Hvaða áhrif hefur tæknin á einstakling og samfélag? Hvaða áhrif hefur tæknin á hugmyndir um mennsku? Hver er framtíð mannkyns í tæknivæddu samfélagi?
Föstudagsfyrirlestrar líffræðinnar haldnir í stofu 130 í Öskju, náttúrufræðahúsi HÍ og eru öllum opnir. Erindin eru flutt á íslensku, nema annað sé tekið fram.
Dagskrá vorsins má nálgast á vef Líf og umhverfisvísindadeildar HÍ.
English summary.
Úlfhildur Dagsdóttir, literary scholar will discuss the connections between biotechnology and literture in a talk February 10. 2012 (12:30-13:10).
The talk is titled It's Alive! Biotechnology and (/as) fiction.
The talk is based on the study The Cyborg: The Meeting of Body and Technology in Fantasy and Reality (2011). The book is about cyborgs (such as androids, robots, clones) in literature and imagery. Biotechnology is examined in the light of fiction and film with the aim of analysing how fiction influences our ideas of biotechnology. The connection between technology and culture is examined, particularly as this connection appears in fiction. What influence does technology have on the individual and society? What influence does technology have on how we define human being? What is the future of mankind in a technological society?
The talk will be delivered in Icelandic. Other talks in this series.

