Skip to main content

Upplýsingar um Inntökuprófið

Prófið er staðpróf sem lagt er fyrir í rafræna prófakerfinu INSPERA.

Meginhluti prófsins (70%) eru krossaspurningar um efni sem kennt er í framhaldsskólum og tilheyrir raunvísindum, hugvísindum og félagsvísindum. Spurningarnar koma úr spurningasafni, sem er afrakstur samstarfs Læknadeildar og kennara úr fjölmörgum framhaldsskólum landsins. Allar spurningar í þessum hluta prófsins hafa sama vægi en fjöldi spurninga í hverjum prófhluta er ekki fast ákveðinn milli ára. Árið 2023 var fjöldi spurninga sem hér segir:

  • Eðlisfræði: 24 spurningar
  • Efnafræði: 50 spurningar
  • Enska: 27 spurningar
  • Félagsfræði: 7 spurningar
  • Íslenska: 27 spurningar
  • Náttúrufræði: 70 spurningar
  • Saga: 7 spurningar
  • Sálfræði: 3 spurningar
  • Stærðfræði: 35 spurningar​​​

Aðrir prófhlutar byggja ekki á ákveðnu námsefni (30%), en leggja mat á almenna þekkingu, yrta rökfærslu/upplýsingalæsi og nálgun og úrlausn siðfræðilegra vandamála. Þessir prófhlutar eru einnig á formi krossaspurninga, fyrir utan stuttar ritgerðir í spurningum um siðfræðileg álitamál og skal próftaki ná lágmarkseinkunn 5,0 að meðaltali í þeim spurningum. Árið 2023 var fjöldi og vægi spurninga sem hér segir:

  • Almenn þekking: 100 spurningar, 10%
  • Siðfræði: 5 spurningar, 10%
  • Yrt rökfærsla: 25 spurningar, 10%

Sýnishorn hér að neðan gefa nokkuð raunsanna mynd af gerð og eðli spurninga:

Í krossaspurningum á einungis að merkja við einn svarlið í hverri spurningu, þ.e. rétta eða réttasta svarið, ef merkt er við fleiri svarliði telst það sem rangt svar. Ekki er þó dregið frá fyrir rangt svar.

Ákveðnum prófhlutum fylgja formúlublöð með þeim jöfnur/formúlur sem kennarar framhaldsskóla telja að próftakar þurfi að hafa við hendina til þess að geta svarað viðkomandi spurningum. Hér má sjá sýnishorn af formúlublöðum:

Síðast uppfært 09.2023 - Athugið að þessar upplýsingar kunna að vera uppfærðar áður en opnað er fyrir umsóknir ár hvert.

Læknadeild útvegar próftökum reiknivélar sem munu liggja frammi á prófstað

Ekki er heimilt að nota aðrar reiknivélar eða hjálpargögn í prófinu en þau sem Læknadeild útvegar.

Reiknivélarnar eru af tegundinni Casio fx-350ES PLUS.

Tengt efni