Skip to main content

Reglur nr. 155-2011

Reglur um val nemenda til náms í tannlæknisfræði og tannsmíði við Tannlæknadeild Háskóla Íslands, nr. 155/2011

með síðari breytingum

1. gr.  Ákvörðun um fjöldatakmörkun.

Heilbrigðisvísindasvið, að tillögu Tannlæknadeildar, leggur fyrir háskólaráð, ef þörf krefur, rökstuddar tillögur um fjölda stúdenta sem unnt er að taka til náms í tannlæknisfræði og tannsmíðum. Skal beiðni frá deildinni, þar að lútandi, send háskólaráði fyrir lok nóvember ár hvert. Háskólaráð afgreiðir tillögur Tannlæknadeildar eigi síðar en í janúar.

[Ef fjöldatakmörkun er ákveðin fer val stúdenta til náms fram í samræmi við ákvæði reglna þessara. Í tannlæknisfræði fer val nemenda fram í tveimur skrefum: inntökupróf er haldið í júní ár hvert í samráði við læknadeild þar sem tiltekinn fjöldi, ákveðinn skv. 1. mgr., öðlast rétt til náms í tannlæknisfræði á næsta haustmisseri. Samkeppnispróf fer svo fram við lok haustmisseris í desember þar sem tiltekinn fjöldi, ákveðinn skv. 1. mgr., öðlast rétt til náms í tannlæknisfræði á komandi vor­misseri. Í tannsmíði fer fram samkeppnispróf í desember þar sem tiltekinn fjöldi, ákveðinn skv. 1. mgr., öðlast rétt til náms í tannsmíði á komandi vormisseri.]1
1
Breytt með rgl. nr. 124/2023.

[2. gr. Inntökupróf í tannlæknisfræði.

Inntökupróf í tannlæknisfræði er haldið í júní ár hvert, samkvæmt nánari ákvörðun læknadeildar og tannlæknadeildar að höfðu samráði við sviðsstjóra kennslusviðs Háskóla Íslands. Prófið er haldið á vegum Háskóla Íslands og í húsnæði á hans vegum.

Tannlæknadeild auglýsir inntökuprófið í tannlæknisfræði og er framkvæmd þess lýst á heimasíðu deildarinnar.

Nemendur skulu vera skráðir sérstaklega til inntökuprófsins, hjá nemendaskrá Háskóla Íslands, áður en þeir ganga til prófsins. Tiltekinn fjöldi, ákveðinn skv. 1. gr., þeirra nemenda sem bestum árangri ná í prófinu, fær rétt til náms í tannlæknadeild Háskóla Íslands á næsta haustmisseri eftir prófið, sbr. 4. gr. Nemandi sem öðlast rétt til náms í tannlæknadeild, að loknu inntökuprófi, skal hefja námið á næsta haustmisseri eftir prófið. Að öðrum kosti hefur hann fyrirgert rétti sínum til náms í tannlækna­deild á grundvelli þessa inntökuprófs, en þann rétt öðlast þá sá nemandi sem næstur var því að öðlast rétt til náms á grundvelli sama inntökuprófs. Ef tveir eða fleiri nemendur eru jafnir með lægstu einkunn sem hefði dugað einum nemanda með þá einkunn til að öðlast rétt til námsins, öðlast báðir eða allir rétt til náms á næsta haustmisseri þótt nýnemar verði þar af leiðandi fleiri en ákveðið var skv. 1. gr. Hafi hópurinn sem á rétt á inngöngu stækkað á grundvelli 5. málsliðar þessarar málsgreinar og ákveði síðan nemandi að nýta sér ekki rétt sinn, verður ekki bætt við nem­anda í hans stað.

3. gr. Skráning til inntökuprófs.

Skráningu til inntökuprófsins skal lokið fyrir 20. maí. Skráning getur farið fram, enda þótt nemandi hafi þá ekki lokið stúdentsprófi, en þegar inntökuprófið er þreytt skal nemandinn hafa lokið stúdentsprófi eða öðru sambærilegu prófi.

Heimilt er, á grundvelli 2. mgr. 24. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, að inn-heimta próftökugjald til að kosta gerð, fyrirlögn og yfirferð inntökuprófa. Ef próftökugjald er innheimt, fer um fjárhæð þess og innheimtu eftir sameiginlegum reglum fyrir Háskóla Íslands. Ef próftökugjald er innheimt, skal koma fram á heimasíðu tannlæknadeildar hvenær greiðslu þess skuli lokið. Hafi greiðsla próftökugjalds ekki borist fyrir þann tíma, fellur réttur til að þreyta inntökuprófið niður.

4. gr. Skrásetning til náms í Háskóla Íslands.

Skrásetningu þeirra, sem þreyta inntökupróf skv. þessum reglum og öðlast rétt til náms á næsta haustmisseri í tannlæknadeild, skal lokið fyrir 20. júlí. Þeir, sem ekki öðlast rétt til náms í tannlækna­deild, eiga þess kost að skrásetja sig, innan sömu tímamarka, í aðrar deildir gegn greiðslu skrásetn­ingar­gjalds skv. reglum Háskóla Íslands.

5. gr. Framkvæmd og inntak inntökuprófs.

Undirbúningur prófsins fer fram af hálfu læknadeildar í samráði við tannlæknadeild með sérstakri ráðgjöf, m.a. frá kennurum framhaldsskóla. Inntökuprófið tekur tvo daga, og samanstendur af sex tveggja tíma próflotum.

Prófið er að hluta til mat á almennri þekkingu, ytri rökfærslu, upplýsingalæsi og lesskilningi, nálgun og úrlausn vandamála, auk spurninga um siðfræðileg álitaefni. Gildi þessara prófhluta er 30% af heild. Þessir prófhlutar verða á formi krossaprófs, en stuttar ritgerðir geta einnig verið í spurn­ingum um siðfræðileg álitamál. Þessir prófhlutar byggja ekki á ákveðnu námsefni. Nemandi skal ná lágmarks­­einkunn 5,0 að meðaltali í spurningum um siðfræðileg álitaefni.

Í hinum prófhlutunum, sem gilda 70% af heildinni, verða lagðar fyrir krossaspurningar. Þessi hluti miðast við framhaldsskólanám, svo sem lýst er hér á eftir.

Við gerð inntökuprófsins er aðalnámskrá framhaldsskóla frá 2011 höfð til hliðsjónar.

Tannlæknadeild mælir með að nemendur búi yfir þekkingu, leikni og hæfni sem einkennir hæfni­þrep 2–3 fyrir eftirfarandi námsgreinar:

  • íslensku
  • ensku
  • stærðfræði
  • líffræði
  • efnafræði

auk þekkingar, leikni og hæfni sem einkennir hæfniþrep 1–2 í eftirfarandi námsgreinum:

  • eðlisfræði
  • náttúruvísindi
  • félagsfræði
  • saga
  • sálfræði

Læknadeild og tannlæknadeild tilnefna umsjónarmenn með samningu prófsins og til að fara yfir prófúrlausnir. Forseti heilbrigðisvísindasviðs skipar, að fengnum tillögum deildanna, prófdómara, einn eða fleiri eftir atvikum.

Í þeim hluta þar sem ekki er um að ræða krossapróf dæma umsjónarmenn annars vegar og próf­dómari hins vegar úrlausnir og gefa sjálfstætt einkunn fyrir úrlausnir. Endanleg niðurstaða er meðal­tal þeirra einkunna.

Einkunnir verða reiknaðar með tveimur aukastöfum.

Á heimasíðu tannlæknadeildar skal birta sýnishorn af prófspurningum úr hverjum prófhluta fyrir sig til glöggvunar fyrir þá sem hyggjast þreyta prófið.]1
1
Breytt með rgl. nr. 124/2023.

6. gr.  Fyrirkomulag samkeppnisprófa.

Samkeppnispróf fyrir skráða stúdenta í tannlæknisfræði og tannsmíði eru haldin í desember að lokinni kennslu á haustmisseri. [Prófað verður úr öllum námskeiðum sem metin eru til námseininga á haustmisseri 1. námsárs.]2 Ekki er hægt að fá viðurkennd eldri próf. Desemberpróf fyrsta árs eru að jafnaði ekki endurtekin á öðrum árstímum, sjá þó undir a) og b). Sjúkrapróf eru ekki haldin í samkeppnisprófum í tannlækningum og tannsmíði.

  1. Kandídatsnám í tannlækningum.
    Stúdentspróf af bóknámsbraut er inntökuskilyrði í tannlæknisfræði. Til að standast samkeppnispróf í tannlæknisfræði verður stúdent að hafa hlotið eigi lægra en 5,0 í hverri prófgrein. Ef fleiri stúdentar þreyta öll samkeppnisprófin en sá fjöldi sem ákveðinn hefur verið, sbr. 1. gr. (numerus clausus), öðlast einungis þeir rétt til áframhaldandi náms í tannlæknisfræði við Tannlæknadeild Háskóla Íslands sem bestum árangri ná á samkeppnisprófum. Verði niðurstaða úr prófum slík að ekki nái sá fjöldi sem ákveðinn hefur verið lágmarkseinkunn, verða endurtekningarpróf haldin samkvæmt nánari ákvörðun deildarinnar. Þau próf breyta ekki stöðu þeirra sem þegar hafa náð prófum. Þeim sem taka endurtekningarpróf er raðað eftir að niðurstaða úr þeim prófum liggur fyrir. [Þegar tveir eða fleiri nemendur hafa sömu meðaleinkunn og velja þarf á milli þeirra ræður forgangsröðun einkunna, þannig að sá nemandi sem hefur hæstu einkunn í fræðilegri formfræði tanna heldur áfram námi. Ef tveir nemar hafa sömu einkunn í þeirri grein þá ræður hæsta einkunn í almennri líffræði, því næst hæsta einkunn í efnafræði [...]2 og að síðustu hæsta einkunn í verklegri formfræði tanna.]1
  2. BS nám í tannsmíði.
    Stúdentspróf [...]1 er inntökuskilyrði í BS nám í tannsmíði. Til að standast samkeppnispróf í tannsmíði verður stúdent að hafa hlotið eigi lægra en 5,0 í hverri prófgrein. Ef fleiri stúdentar þreyta öll samkeppnisprófin en sá fjöldi sem ákveðinn hefur verið, sbr. 1. gr. (numerus clausus), öðlast einungis þeir rétt til áframhaldandi náms í tannsmíði við Tannlæknadeild Háskóla Íslands sem bestum árangri ná á samkeppnisprófum. Verði niðurstaða úr prófum slík að ekki nái sá fjöldi sem ákveðinn hefur verið lágmarkseinkunn, verða endurtekningarpróf haldin samkvæmt nánari ákvörðun deildarinnar. Þau próf breyta ekki stöðu þeirra sem þegar hafa náð prófum. Þeim sem taka endurtekningarpróf er raðað eftir að niðurstaða úr þeim prófum liggur fyrir. [Þegar tveir eða fleiri nemendur hafa sömu meðaleinkunn og velja þarf á milli þeirra ræður forgangsröðun einkunna, þannig að sá nemandi sem hefur hæstu einkunn í fræðilegri formfræði tanna heldur áfram námi. Ef tveir nemar hafa sömu einkunn í þeirri grein þá ræður hæsta einkunn í fagvitund starfsstéttar, því næst hæsta einkunn í almennri efnafræði, síðan hæsta einkunn í líffærafræði og að síðustu hæsta einkunn í verklegri formfræði tanna.]1

1Breytt með 1. gr. rgl. nr. 479/2020.
2Breytt með 1. gr. rgl. nr. 310/2021.

7. gr.  Vægi greina og námsmat.

[Prófað verður úr öllum námskeiðum sem metin eru til námseininga á haustmisseri 1. námsárs.]2 Vægi þeirra námskeiða sem prófað er í er ákveðið af Tannlæknadeild og miðast við eftirfarandi einingafjölda námskeiða:

  1. Kandídatsnám í tannlækningum:
    Efnafræði I, 8e
    Almenn líffræði A, [10e]2
    Formfræði tanna, verkleg, 6e
    Formfræði tanna, fræðileg, [6e]2
    [...]2
  2. BS nám í tannsmíði:
    Efnafræði I, [6e]1
    Líffærafræði, 6e
    Formfræði tanna, verkleg, 6e
    Formfræði tanna, fræðileg, [6e]2
    Fagvitund starfsstéttar, 6e

Einkunn fyrir hvert námskeið er gefin með tveimur aukastöfum, frá 0,00-10,00. Þær einkunnir eru síðan aðlagaðar vægi greinanna. Heildareinkunn í samkeppnisprófunum fæst með því að leggja saman einkunnir úr einstökum námskeiðum, sem þannig hafa verið vegnar. Þessi einkunn, reiknuð með tveimur aukastöfum, er lögð til grundvallar við niðurröðun stúdenta varðandi áframhaldandi nám.
1Breytt með 2. gr. rgl. nr. 479/2020.
2Breytt með 2. gr. rgl. nr. 310/2021.

8. gr.  Birting einkunna, endurtökupróf, sjúkrapróf o.fl.

Stefnt skal að því að einkunnir úr samkeppnisprófi að loknu haustmisseri 1. námsárs í tannlæknisfræði og tannsmíði verði birtar [fyrir jól.]1

Sjúkrapróf eru ekki haldin. Endurtökupróf eru að jafnaði ekki haldin, sjá þó 2. grein.

Að öllu jöfnu er stúdentum ekki veitt námsleyfi á fyrsta námsári.
1Breytt með 3. gr. rgl. nr. 479/2020.

9. gr.  Gildistaka o.fl.

Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands að fenginni tillögu Heilbrigðisvísindasviðs, eru settar með heimild í 3. og 4. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla.

Reglur þessar öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 4. febrúar 2011.

[Ákvæði til skýringar.

Inntökuprófið er próf til inntöku nýnema í nám á næsta haustmisseri í tannlæknisfræði við tann­lækna­deild. Hugtakið „almenn þekking“, í skilningi reglna þessara, miðast því við það markmið, og er í sjálfu sér ekki takmarkað. Þannig verður t.d. leitað eftir þekkingu á málefnum líðandi stundar, s.s. á sviði mannlegra þátta, sögu og menningar hvers konar, félagsfræði og heilbrigðis­umræðu. Verði ritgerðaspurningar um siðfræðileg álitamál á inntökuprófi, verða þær settar fram sem sjúkra­tilfelli eða annars konar vandamál til úrlausnar. Höfundar prófsins munu, við gerð þess, ákveða fyrir fram hvaða áherslum er verið að sækjast eftir til að byggja ramma utan um einkunnagjöf. Komi fram galli í prófspurningum verður tekið tillit til þess við úrvinnslu en ekki á prófstað.]1
1
Breytt með rgl. nr. 124/2023.