Veðrið leikur við ráðstefnugesti

Fjölmennasta alþjóðlega ráðstefna sem haldin hefur verið á Íslandi fer fram í Háskóla Íslands dagana 25.-27. ágúst. Þá er von á á þriðja þúsund evrópskra stjórnmálafræðinga á rástefnu á vegum European Consortium of Political Research í samstarfi við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála. Ráðstefnan er einn af stóru viðburðum Háskóla Íslands á 100 ára afmælisári hans.

Undirbúningur ráðstefnunnar hefur staðið í um fjögur ár enda um yfirgripsmikið og flókið verkefni að ræða. Á ráðstefnunni verða kynntar niðurstöður nýrra rannsókna á sviði stjórnmálafræði í 2500 erindum á um 500 málstofum undir um 60 efnisflokkum.

Sjá myndir frá Flickr 

Opnunarhátíð ráðstefnunnar verður fimmtudaginn 25. ágúst í Hörpu þar sem forseti Íslands og fyrrverandi prófessor í stjórnmálafræði, Ólafur Ragnar Grímsson, heldur hátíðarerindi. Þá eru tvennar hringborðsumræður skipulagðar á ráðstefnunni. Föstudaginn 26. ágúst verður fjallað um smáríki og heimskreppuna en laugardaginn 27. ágúst er rætt um alþjóðavæðingu, jafnrétti kynjanna og stjórnmál. Að öðru leyti fer ráðstefnan fram í málstofum þar sem meðal annars er rætt um græn stjórnmál, skipulag og stjórnun í stjórnsýslunni, pólítíska stefnumótun, mannréttindi og réttlæti í þjóðfélögum sem ganga gegnum tímabil umbreytinga og lýðræðisumbóta, stefnur í málefnum innflytjenda og hælisleitenda og Evrópustjórnmál, svo fátt eitt sé nefnt. Dagskrá ráðstefnunnar má sjá hér.

Háskólasvæðið að mestu lagt undir ráðsstefnuna
Skráðir þátttakendur á ráðstefnunni eru um 2300 talsins. Þess má geta að á árinu 2010 komu tæplega 500 þúsund erlendir ferðamenn til landsins og fram til loka júní 2011 var aukningin 20% milli ára. Erlendir þátttakendur á ráðstefnunni samsvara því um 0,4% af erlendum ferðamönnum sem má ætla að komi til landsins í ár og eru þá ekki taldir förunautar þátttakenda, s.s. makar og börn. 

Ráðstefnan fer fram í fimm húsum á háskólasvæðinu, Aðalbyggingu, Háskólatorgi, Lögbergi, Odda og Árnagarði, og eru flestar stofur í þessum byggingum lagðar undir ráðstefnuna.  Þá hefur Íþróttahús HÍ verið tekið undir veitingaaðstöðu þar sem um 1200 þátttakendur munu neyta hádegisverðar þá þrjá daga sem ráðstefnan stendur. Um 20 bókaforlög eru með bókasýningu í opnu rými í Odda á 1. og 2. hæð.

Í undirbúninganefnd ráðstefnunnar fyrir hönd Háskóla Íslands eru þau Ólafur Þ. Harðarson, forseti Félagsvísindasviðs HÍ, Ásta Möller, forstöðumaður, Margrét S. Björnsdóttir aðjúnkt og Jökul Torfason, stjórnmálafræðinemi og formaður Politica, félags stjórnmálafræðinema. Auk þeirra koma að undirbúningi og framkvæmd mikill fjöldi starfsmanna HÍ, Gestamóttökunnar Your Host, Múlakaffis og Félagsstofnunar stúdenta auk nemenda í stjórnmálafræði.

deila á facebook