Skip to main content
11. maí 2015

Tæknifræðingur úr HÍ og Keili tilnefndur til verðlauna

Nýtt fyrirtæki Sigurðar Hreindal, nemanda úr mekatróník hátæknifræðinámi Háskóla Íslands og Keilis, hefur verið tilnefnt til Norrænna nýsköpunarverðlauna (Nordic Startup Awards). Fyrirtækið nefnist Mekano ehf. og stefnir að framleiðslu nýrra kynslóða fjöltengja.

Um er að ræða samsett einingafjöltengi fyrir allar gerðir raftækja og er mun minna í sniðum en þau fjöltengi sem þekkjast í dag. Markmiðið er að fækka snúrum og nýta pláss betur ásamt því að hanna fjöltengi í nýstárlegu og stílhreinu útliti. 

Viðskiptahugmyndin að Mekano hafnaði fyrr á árinu í öðru sæti í frumkvöðlakeppninni Gullegginu sem Klak Innovit heldur árlega ásamt fleiri fyrirtækjum. Eftir keppnina stofnaði Sigurður fyrirtækið Mekano ehf. sem er staðsett í frumkvöðlasetrinu Eldey á Ásbrú. 

Sigurður Örn útskrifaðist úr tæknifræðinámi Háskóla Íslands og Keilis sumarið 2014 sem mekatróník hátæknifræðingur. Við útskriftina hlaut hann viðurkenningu frá Tæknifræðingafélagi Íslands fyrir lokaverkefni sitt sem gekk út á hönnun á sjálfvirkri nálavindivél fyrir netagerðarmenn.

Sigurður Örn Hreindal, stofnandi Mekano, útskrifaðist úr tæknifræðinámi Háskóla Íslands og Keilis sumarið 2014 sem mekatróník hátæknifræðingur.
Sigurður Örn Hreindal, stofnandi Mekano, útskrifaðist úr tæknifræðinámi Háskóla Íslands og Keilis sumarið 2014 sem mekatróník hátæknifræðingur.