Skip to main content
1. mars 2024

Spáðu í framtíðina með HÍ á Háskóladaginn  

Spáðu í framtíðina með HÍ á Háskóladaginn   - á vefsíðu Háskóla Íslands

Háskóli Íslands býður öllum áhugasömum að heimsækja háskólasvæðið á Háskóladaginn 2024 sem fram fer 2. mars milli klukkan 12 og 15. Þar verður hægt að kynna sér yfir 400 námsleiðir í grunn- og framhaldsnámi sem í boði eru innan háskólans. Auk námskynninga verða kynningar á fjölbreyttri starfsemi og þjónustu sem stúdentum í námi við Háskóla Íslands stendur til boða. 

Háskóladagurinn er samstarfsverkefni allra háskóla á landinu og er ómissandi fyrir mörg sem hyggja á háskólanám enda frábært tækifæri til að spjalla við vísindamenn, kennara og nemendur um allt sem viðkemur mögulegu námi í framtíðinni. Öll áhugasöm eru hvött til að mæta og kynna sér námsframboð og þjónustu háskólanna.

Námskynningar á vegum einstakra fræðasviða Háskóla Íslands fara fram í fjórum byggingum háskólans: Grósku, Öskju, Háskólatorgi og Aðalbyggingu:

  • Félagsvísindasvið: Háskólatorg, 2. hæð
  • Heilbrigðisvísindasvið: Gróska
  • Hugvísindasvið: Aðalbygging, 2. hæð
  • Menntavísindasvið: Háskólatorg, 2. hæð
  • Verkfræði- og náttúruvísindasvið: Askja 

Hægt er að sjá kort af háskólasvæðinu og leita að einstökum námsleiðum í leitarvél á vef HÍ.

Kynningar á þjónustu HÍ og öðrum háskólum

Fulltrúar frá Nemendaráðgjöf, Alþjóðasviði og Nemendaskrá verða á staðnum á 2. annarri hæð Háskólatorgs til að veita aðstoð og upplýsingar um þá fjölbreyttu þjónustu sem nemendum Háskóla Íslands stendur til boða. Einnig verða þar fulltrúar frá Stúdentaráði sem geta svarað spurningum um réttindamál stúdenta og öflugt félagslíf skólans. Jafnframt veita fulltrúar Félagsstofnunar stúdenta upplýsingar um Stúdentagarða, Leikskóla stúdenta og aðra þjónustu.

Sem fyrr segir er Háskóladagurinn samstarfsverkefni allra háskólanna á landinu og Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands á Hvanneyri verða með námskynningar á 1. hæð á Háskólatorgi. Háskólinn á Bifröst, Háskólinn í Reykjavík og Listaháskóli Íslands verða einnig á 1. hæð á Háskólatorgi. Auk þess verður HR með námskynningu í eigin húsakynnum við Öskjuhlíð og LHÍ í eigin húsakynnum á Laugarnesvegi.

Nánari upplýsingar um Háskóladaginn í Háskóla Íslands má finna á vef HÍ.

Rafskútuleigan Hopp verður með tilboð á ferðum milli skólanna á meðan á deginum stendur.
 

Háskóladagurinn 2023