Skip to main content
5. apríl 2024

Skráning hafin í Háskólahlaupið 2024

Skráning hafin í Háskólahlaupið 2024 - á vefsíðu Háskóla Íslands

Skráning er hafin í Háskólahlaupið 2024 sem fer fram miðvikudaginn 10. apríl kl. 15 í nágrenni háskólasvæðisins. Hlaupið er opið bæði starfsmönnum og stúdentum og hægt er að velja á milli tveggja vegalengda, 3 km og 7 km.

Skrá mig í hlaupið

Skráning er opin til kl. 17 þriðjudaginn 9. apríl.

Þriggja kílómetra hlaupaleiðin liggur m.a. meðfram Suðurgötu, út að Reykjavíkurflugvelli og meðfram friðlandinu í Vatnsmýri en sjö kílómetra leiðin í kringum Reykjavíkurflugvöll.

Þátttökugjald er 2.500 kr. og innifalið í því er íþróttabolur merktur Háskólahlaupinu 2024.

Kort af hlaupaleiðum

Félagsstofnun stúdenta veitir verðlaun til þeirra sem koma fyrst í mark á báðum vegalengdum.

Um Háskólahlaupið

Ertu með fyrirspurn um hlaupið? Sendu okkur línu á haskolahlaupid@hi.is

Frá Háskólahlaupinu 2019