Skip to main content
18. apríl 2017

Nýtt tungumálahús fær nafnið Veröld – hús Vigdísar

""

Nýbygging sem helguð verður kennslu í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands og starfsemi Vigdísarstofnunar – alþjóðlegrar miðstöðvar tungumála og menningar hefur fengið nafnið Veröld – hús Vigdísar. Tilkynnt var um það í Hátíðasal Háskóla Íslands í dag. 

Efnt var til samkeppni um heiti á húsið og bárust alls 800 tillögur í keppnina. Það kom í hlut valnefndar að velja bestu tillögurnar en hana skipuðu Eiríkur Smári Sigurðarson, fulltrúi Hugvísindasviðs, formaður, Geir Þórarinn Þórarinsson, fulltrúi Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum, Guðrún Kvaran, fulltrúi Vigdísarstofnunar, og Inga Jóna Þórðardóttir, fulltrúi rektors. Nefndin komst að einróma niðurstöðu sem var staðfest af háskólaráði 6. apríl sl. 

Nafn hússins er samsett úr tveimur tillögum sem bárust, annars vegar Veröld og hins vegar Hús Vigdísar. Tvær tillögur bárust um nafnið Veröld, frá þeim Huldu Egilsdóttur og Sveini V. Ólafssyni. Tillögu um viðbótina, hús Vigdísar, áttu fimm konur, þær Ingunn Björnsdóttir, Jónína Hallgrímsdóttir, Kristín Helgadóttir Ísfeld, Sesselja Friðgeirsdóttir og Sigríður B. Guðjónsdóttir. Verðlaunahafarnir fengu allir blómvönd og veglega bókagjöf, þar á meðal bókina „Tungumál ljúka upp heimum: orð handa Vigdísi“. Bókin var gefin út árið 2010 og hefur að geyma texta eftir 27 íslenska rithöfunda sem skrifaðir voru fyrir Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta og helsta hvatamanns nýja hússins, í tilefni áttatíu ára afmælis hennar og þess að 30 ár voru þá liðin frá forsetakjöri hennar. 

Veröld – hús Vigdísar verður formlega opnað við hátíðlega athöfn á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 20. apríl. Efnt verður til glæsilegrar hátíðardagskrár helgaðri tungumálum í Háskólabíói af því tilefni. Jafnframt verður fyrsta sýningin í sýningarsal hins nýja húss opnuð, en hún er helguð störfum og hugðarefnum helsta hvatamanns hússins, Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands.

Fimm af sjö verðlaunahöfum og fulltrúar þeirra í nafnasamkeppninni ásamt Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, Jóni Atla Benediktssyni, rektor Háskóla Íslands, Guðmundi Hálfdánarsyni, forseta Hugvísindasviðs, og Auði Hauksdóttur, forstöðumanni Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum.