Nemendur frá Cooper Union á sumarnámskeiði í HÍ

Nemendur frá Cooper union ásamt leiðbeinendum
Nemendur frá Cooper union ásamt leiðbeinendum

Hér á landi er staddur hópur nemenda frá The Cooper Union í New York (http://www.cooper.edu/) en Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands og Cooper Union gerðu fyrir nokkrum árum með sér samstarfssamning sem felur meðal annars í sér nemendaskipti og rannsóknarsamstarf.

Nemendurnir eru þessa dagana að vinna að hönnun vistrænnar tengibyggingar á milli VR1, VR2 og VR3 á háskólasvæðinu. Kröfurnar sem gerðar eru til verksins eru að húsið sé fallegt, notadrjúgt og aðeins byggt úr aðföngum sem fáanleg eru innanlands og fyrir lítinn pening. Hópnum til halds og trausts er íslenskur nemi, Kristinn Örn Viðarsson, sem stundar nám í arkitektúr við Cooper Union.
 
Þetta er þriðja sumarið sem nemendur frá Cooper Union vinna námsverkefni af þessu tagi í samstarfi við Háskóla Íslands. Fyrir tveim árum vann hópur að hönnun virkjunar fyrir bæjarlækinn við skála Ferðafélags Íslands í Landmannalaugum, leggja gott til við hönnun íþróttamiðstöðvar Knattspyrnufélags Reykjavíkur í Vesturbænum (komu meðal annars með þá hugmynd að sökkva byggingunni niður í jörðina til að hún myndi falla betur að umhverfi sínu) og hjálpa til í hönnunarvinnu við tónlistarhúsið Hörpu í Reykjavík. Í fyrra vann annar nemendahópur að hönnun upphitaðs skrúðgarðs í kringum íþróttahús Háskóla Íslands.  

Nemendurnir hafa einnig verið vinna með prófessor Robert Dell (http://me.cooper.edu/faculty/dell.php) við rannsóknir á rækun planta í upphituðum jarðvegi. Vettvangur þessara rannsókna hefur undanfarin ár aðallega verið á svæði Landbúnaðarháskólans í Hveragerði en nú nýlega hefur Heilsustofnun NLFÍ sýnt þessu verkefni áhuga og lagt til svæði til að halda tilraununum áfram. Þá hafa aðilar hjá Keili í Reykjanesbæ með Rúnar Unnþórsson fremstan í flokki sýnt því áhuga gera samskonar tilraunir á athafnasvæði miðstöðvarinnar.

Á milli þess sem nemendurnir hafa verið að sinna þessu verkefni hafa þau skoðað land og þjóð.

Líkt og undarfarin ár hefur Haukur Ingi Jónasson lektor við véla,- iðnaðar- og tölvunarfræðideild umsjón með verkefninu ásamt Magnúsi Þór Jónssyni en þeir eru báðir í rannsóknarsamstarfi við The Laboratory on Energy Reclamation and Innovation við The Albert Nerken School of Engineering við Cooper Union.


15.7.2010 23:24


deila á facebook
UI runs a Nordic super-...

A Nordic super-computer lab will be operated in Iceland in co-operation between the University of Iceland and three other Nordic institutions. Representatives of the University have finalised an agreement on running the lab for three years. The University of Iceland was among three Nordic...

Baldur Þórhallsson
Insignificant changes in...

“The objective of the study was to examine whether the economic collapse had changed the evaluation of interests regarding membership of the European Union among Icelandic political parties, and if they had changed their policies regarding membership in its aftermath”, says Baldur Þórhallsson,...

The Icelandic Economic...

Dr. Kristín Vala Ragnarsdóttir Dean of the School of Engineering and Natural Science will present the findings from a research that was done on the Icelandic
economic collapse. The name of the research is "The Icelandic Economic Collapse – A systems Dynamics Perspective."

The meeting...

Vilhjálmur Árnasons
Are Icelanders An Immoral...

Vilhjálmur Árnason, professor of philosophy at the University of Iceland, as well as chair of the board of the Centre for Ethics at the university, was interviewed in the May issue of The Grapevine, alternative magazine issued in English.