Skip to main content
12. nóvember 2016

Myllarnir sigruðu í LEGO-hönnunarkeppni FLL

""

Liðið Myllarnir úr Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ bar sigur úr býtum í tækni- og hönnunarkeppni FIRST LEGO League sem haldin var í Háskólabíói í dag. Liðið vann sér um leið þátttökurétt í úrslitakeppni FIRST LEGO League Scandinavia sem haldin verður í Bodø í Noregi í næsta mánuði. 

Keppnin, sem fór nú fram í tólfta sinn, hefur notið vaxandi vinsælda meðal grunnskólanemenda undanfarin á. Að þessu sinni var 21 lið víða af landinu skráð til keppni, sem er metfjöldi, en allt að tíu manns eru í hverju liði ásamt leiðbeinanda.

Markmiðið með keppninni er að efla færni og vekja áhuga ungs fólks á tækni og vísindum. Keppnin byggist á spennandi verkefnum sem jafnframt örva nýsköpun, byggja upp sjálfstraust og efla samskipta- og forystuhæfni. 

Á hverju ári er keppninni valið sérstakt þema og að þessu sinni var það samstarf manna og dýra (e. Animal Allies). Meðal verkefna keppenda var að forrita vélmenni úr tölvustýrðu Legoi til að leysa tiltekna þraut sem tengdist þemaverkefninu. Þá áttu keppendur að gera vísindalega rannsókn á ákveðnu efni sem einnig er tengt þemanu og enn fremur þurftu liðin að gera grein fyrir því hvernig þau forrituðu vélmennin. Auk þess horfði dómnefnd til liðsheildar. Liðin höfðu undirbúið sig af kappi í allt haust, eða frá því að þau fengu senda þrautabraut ásamt upplýsingum um rannsóknarverkefnið.

Þegar upp var staðið í dag og stigin í keppninni höfðu verið talin reyndust Myllarnir sigurvegar í keppninni. Liðið er skipað átta nemendum úr Myllubakkaskóla sem voru öll að taka þátt í keppninni í fyrsta sinn. Þetta er jafnframt fyrsti sigur Myllubakkaskóla í keppninni. Þess má geta að liðið fékk einnig verðlaun fyrir besta rannsóknarverkefnið. Myllunum býðst að taka þátt í úrslitakeppni FIRST LEGO League Scandinavia sem haldin verður í Bodø í Noregi þann 3. desember nk.

Í einstökum flokkum fengu eftirtalin lið verðlaun:

Besta hönnun og forritun vélmennis: GRÍSA frá Grunnskólanum á Ísafirði 

Besta rannsóknaverkefnið: Myllarnir frá Myllubakkaskóla

Sigurvegarar í vélmennakapphlaupi: Oreo frá Egilsstaðaskóla

Besta liðsheildin: Úrhelli frá Vættaskóla

Allir þátttakendur í keppninni, um 200 talsins, fengu enn fremur FLL-medalíu í viðurkenningarskyni.

Háskóli Íslands heldur utan um keppnina en helsti bakhjarl hennar er Nýherji.

Upplýsingar um keppnina má nálgast á heimasíðu hennar og Facebook-síðu keppninnar

Liðið Myllarnir
Liðið Oreo
Úrhelli frá Vættaskóla
GRÍSA frá Grunnskólanum á Ísafirði
Myllarnir frá Myllubakkaskóla
Myllarnir frá Myllubakkaskóla
Liðið Myllarnir
Liðið Oreo
Úrhelli frá Vættaskóla
GRÍSA frá Grunnskólanum á Ísafirði
Myllarnir frá Myllubakkaskóla
Myllarnir frá Myllubakkaskóla