Inga Þórsdóttir, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild, fékk heiðursverðlaun úr Verðlaunasjóði Ásu Guðmundsdóttur Wright, sem veitt voru við hátíðlega athöfn í Þjóðminjasafninu 27. desember sl. Verðlaunin hlaut Inga fyrir framúrskarandi árangur í rannsóknum á sviði næringarfræði.
Á síðustu árum hafa rannsóknir Ingu aðallega verið á sviði næringar ungbarna og skólabarna auk næringar aldraðra og sjúkra, sérstaklega nægra próteina í fæðu aldraðra. Einnig hefur hún rannsakað barnshafandi konur, einkum með tilliti til fisks og lýsisneyslu, grænmetis, ávaxta og fiskneyslu ungra Íslendinga og heilsubætandi framleiðslu úr mjólk og fiskmeti.
Rannsóknir Ingu hafa haft áhrif á fræðslu og forvarnir meðal fjölmargra þjóðfélagshópa.Í framhaldi af rannsóknum hennar hóf Mjólkursamsalan, fyrir atbeina heilbrigðisyfirvalda, þróun og framleiðslu á Stoðmjólk. Stoðmjólk er járnbætt mjólk, löguð er að næringarþörf barna frá 6 mánaða til 2ja ára aldurs, og tekur hún við þegar brjóstagjöf líkur.
Verðlaunasjóður Ásu Guðmundsdóttur Wright, Ásusjóður, var stofnaður á hálfrar aldar afmæli Vísindafélagsins 1. desember 1968. Sjóðinn stofnaði Ása til minningar um eiginmann sinn, ættingja og aðra venslamenn
