Fyrsti doktorsneminn frá HÍ og UW

Tímamót urðu á dögunum þegar Pamela J. Woods brautskráðist fyrst doktorsnema með sameiginlega gráðu frá Háskóla Íslands og Washington-háskóla (University of Washington) í Seattle. Þetta var jafnframt í fyrsta sinn sem doktorsnemandi brautskráist sameiginlega frá Washington-háskóla og erlendum háskóla.

Woods hóf doktorsnám sitt í líffræði í upphafi árs 2008 og fór doktorsvörn hennar fram 22. nóvember síðastliðinn í Bandaríkjunum. Doktorsverkefni hennar ber heitið „Vistfræðilegur breytileiki og fjölbrigðni í bleikju“ (e. Ecological diversity in the polymorphic fish Arctic Charr (Salvelinusalpinus) og við vinnu þess naut hún leiðsagnar Sigurðar S. Snorrasonar, prófessors við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands, Skúla Skúlasonar, rektors Hólaskóla, og Thomasar P. Quinn, prófessors við Washington-háskóla.

Háskóli Íslands og Washington-háskóli hafa átt áralangt og gott samstarf  en Washington-háskóli er einn sá öflugasti í heiminum.  Fjölmargir Íslendingar hafa sótt nám þar, m.a. í verkfræði, efnafræði, lífvísindum og stærðfræði, og í gildi eru stúdentaskiptasamningar milli skólanna tveggja í hug- og raunvísindum annars vegar og verkfræði hins vegar. Margir akademískir starfsmenn Háskóla Íslands hafa einnig lokið doktorsprófi frá Washington-háskóla og dvalið þar á rannsóknamisserum og það hefur styrkt rannsóknasamstarf skólanna enn frekar.

Þess má geta að Jón Atli Benediktsson, prófessor og aðstoðarrektor vísinda og kennslu við Háskóla Íslands, heimsótti Washington-háskóla í lok júní ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, og sendinefnd forsetans. Þar áttu þeir viðræðufund með rektor og deildarforsetum háskólans. Á fundinum var rætt um að auka samstarf skólanna á sviði kennslu og vísindarannsókna með sérstaka áherslu á verkfræði, umhverfisvísindi, náttúruvísindi, norræna menningu að fornu og nýju og á sviði viðskipta- og hagfræði.

deila á facebook