Erfðabreyttar lífverur hafa verið áberandi í umræðunni undanfarin misseri. Eðlilegt er að spyrja um eðli erfðabreyttra lífvera, hvernig eru þær búnar til, hversu algengar þær eru og hvort þær stefni mannfólki í hættu. Spyrja má hvort þær séu hættulegar heilsu eða hvort þær hafi áhrif á lífverur eða vistkerfi. Til að bæta úr þessu og efla þekkingu á erfðabreyttum lífverum hafa Háskóli Íslands, Landbúnaðarháskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri sett saman námskeiðið „Erfðatækni, umhverfi og samfélag“ sem kennt verður dagana 13.-15. apríl næstkomandi.
Námskeiðið verður opið öllum sem stunda framhaldsnám við ríkisháskólana fjóra, Háskóla Íslands, Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri, Hólaskóla og Háskólann á Akureyri, í greinum sem eiga sér snertifleti við nýtingu erfðatækni, t.d. í líffræði, læknisfræði, næringarfræði, lyfjafræði, búvísindum og umhverfis- og auðlindafræði. Námskeiðið er liður í auknu samstarfi skólanna en þeir gerðu nýverið samning um gagnkvæman aðgang nemenda að námskeiðum við skólana.
Kennarar munu halda fyrirlestra um efni á sínu sérsviði auk þess sem gestakennarar verða fengnir til þess að fjalla um hagnýtingu erfðatækni í atvinnulífinu og hlutverk stjórnvalda á þessu sviði. Nemendur munu rýna valdar vísindagreinar og fjalla um þær á gagnrýninn hátt. Þeir munu einnig flytja stutta fyrirlestra um efni sem valin verða í samráði við kennara.
Með námskeiðinu er ætlunin að efla skilning nemenda á erfðabreyttum lífverum og áhrifum þeirra á umhverfið og heilsu manna og dýra og á samfélagið almennt.
Nemendur innan HÍ sem áhuga hafa á námskeiðinu geta skráð sig í LÆK099F Erfðatækni, umhverfi og samfélag.
